Þolaksturskeppni KK fer fram sunnudaginn 26. ágúst 2018 á Hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins.
Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteini og félagsskírteini
Skoðað ökutæki
Hjálm og keppnisgalla
Vera meðlimur í akstursíþróttafélagi innan AKÍS
Skráð ökutæki þurfa vátryggingarviðauka
Tuttugu bílar keppa við klukkuna og hvern annan á sérbyggðri keppnisbraut í Kapelluhrauni.
Keppnin stendur í 3 klukkustundir samfellt.
Sá vinnur keppnina sem ekur flesta hringi á þeim tíma.
Keppendur taka þrjú 10 mínútna aksturshlé.
Að auki er þeim frjálst að aka í pitt hvenær sem þurfa þykir.
Heimilt er að setja eldsneyti á ökutæki í pittstoppi en ekki aksturshléi.
Dekkjaskipti eru ekki leyfð.
Skráning og keppnisgjöld.
Forskráningu lýkur mánudaginn 30. apríl kl 23:00 - keppnisgjald kr. 5.000
Almennri skráningu lýkur þriðjudaginn 21. ágúst kl. 23:00 - keppnisgjald kr. 8.000
Eftirskráningu lýkur fimmtudaginn 23. ágúst kl. 16:00 - keppnisgjald kr. 11.000
Innifalið í keppnisgjaldi er keppnisskírteini til AKÍS kr. 1.000
Skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
DAGSKRÁ
11:00 Keppendur mæta á brautina og undirbúningur hefst
11:15 - 12:30 Pittur lokar - skoðun ökutækja fyrir keppni
12:30 Keppendur funda með starfsmönnum
13:00 Keppni hefst
16:00 Keppni lýkur
17:00 Verðlaunaafhending
KK
Viðburðarstjóri: Baldvin Hansson
Öryggisfulltrúi: Ingimundur Helgason
Skoðunarmaður: Ingólfur Arnarson
Formaður dómnefndar: Sigurjón Andersen
26. ágúst 2018 kl: 11:00
Hringakstursbraut KK
Lýsing: 2412 metrar
Tímaat
Bikarmót -
Skráning hefst: 11. apríl 2018 kl: 00:00
Forskráningargjald: 4000 kr.-
Almennt gjald frá 30. apríl 2018: 7000 kr.-
Skráningargjald hækkar 21. ágúst 2018 í 10000 kr.-
Skráningu lýkur: 23. ágúst 2018 kl: 16:00
Opinn götubílaflokkur
Reglur um Þolaksturskeppni 2018
Keppnin heitir Þolaksturskeppni KK og er haldin á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins.
Um keppnina
Keppnin er tímaat sem stendur samfellt í 3 klukkustundir. Keppt er samkvæmt reglum AKÍS um tímaat með þeim breytingum og frávikum sem lýst er í þessum reglum. Sá vinnur keppnina sem hefur lokið flestum hringjum þegar 180 mínútur eru liðnar frá því að fyrsti keppandi ekur yfir rásmarkið. Aðeins eru taldir full eknir hringir. Hámarks fjöldi keppenda er 25.
Ökutæki
Hver ökumaður skal keppa á sama ökutæki alla keppnina. Heimilt er að skrá til keppni öll ökutæki sem leyfð eru til keppni í tímaati með þeim takmörkunum og breytingum þó sem kveðið er á um í þessum reglum um þolaksturskeppni sérstaklega.
DEKK
Dekk skulu hafa götumynstur og thread wear 220 eða hærra. Gefi framleiðandi ekki upp thread wear ákveður skoðunarmaður hvort tiltekin dekk teljast samþykkt til keppni. Lágmarks mynsturdýpt er 3mm við upphaf keppni. Ekki má skipta um dekk á meðan á keppni stendur. Springi dekk fellur ökumaður úr keppni og skal aka beint í pitt sé þess kostur.
BREMSUR
Akstri skal hagað með þeim hætti að ökutækið missi ekki bremsur. Telji brautarvörður að ástæða sé til að hafa afskipti af ökutæki t.d. vegna bremsulyktar eða ef svo virðist sem ökutæki eigi í erfiðleikum með að bremsa gerir hann keppnisstjóra viðvart sem metur ástandið og tekur ákvörðun um hvort kalla þurfi viðkomandi ökutæki í pittstopp til að huga betur að því.
ELDSNEYTI
Heimilt er að fylla á eldsneytistank ökutækis á meðan á keppni stendur. Áfylling skal gerð í pitti og undir eftirliti öryggisfulltrúa sem tryggir öryggi keppenda og annarra í pittinum eftir fremsta megni. Ökumaður má ekki annast eldsneytisáfyllingar sjálfur. Eldsneytisáfylling er ekki heimil í skilyrtum aksturshléum.
RÆSING
Bílar eru ræstir út með hámark 5 sekúndna millibili við upphaf keppni.
SKILYRT AKSTURSHLÉ
Á hverri klukkustund sem keppnin stendur verður ökumaður að taka 10 mínútna samfellt hlé frá akstri. Ekki má taka tvö hlé í einu lagi. Aka þarf lágmark einn hring á milli þeirra. Hléinu skal varið inni í sérstöku lokuðu pittsvæði (parc fermé). Óheimilt er að vinna við ökutækið í skilyrtu hléi. Þá er eldsneytisáfylling einnig bönnuð. Tímamismunur keppenda við ræsingu er jafnaður út í skilyrtu hléi á þann hátt að sekúndum til jafns við bil á milli bíla í ræsingu er bætt við biðtíma hvers keppanda í fyrsta hléi fyrir hvern keppanda sem á eftir honum fór í brautina við upphaf keppni. Eftir fyrsta skilyrta aksturshlé verða allir keppendur því komnir með sambærilegan rástíma. Þar sem hvert hlé er 10 mínútur samfellt verður að taka hléið í síðasta lagi 50 mínútum eftir upphaf hverrar klukkustundar aksturs. Í fyrsta hléi þarf að auki að taka tillit til viðbótartíma sem þarf til að jafna út tímamismun í ræsingu. Taki ökumaður ekki hlé tímanlega rennur hann út á tíma og er fallinn úr keppni.
PITTUR OG PITTSTOPP
Keppendum er heimilt að aka í pitt hvenær sem þeir telja þörf á því. Aldrei má aka úr pitt og inn á braut nema að fengnu samþykki pittstjóra. Hámarkshraði í pitti er 15 km á klst. Hámarkshraðatakmörkun tekur gildi um leið og ekið er inn fyrir fyrstu keilur sem marka pittsvæði og gildir fram að aðgangshliði inn á brautina. Hvert ökutæki á ákveðið stæði í pittinum sem pittstjóri úthlutar keppanda við mætingu á keppnisstað. ,
FRAMÚRAKSTUR
Aðeins má taka fram úr einum bíl í einu. Óheimilt er að taka fram úr ökutæki sem er að taka fram úr öðru ökutæki á sama tíma. Brautarverðir geta metið framúrakstur ógætilegan eða að tekið sé fram úr fleiri en einum bíl í einu. Í slíkum tilfellum fær viðkomandi svart flagg við fyrsta tækifæri og tekur út refsingu með að aka í pitt þar sem tiltal er veitt.
SÉRSTAKAR REFSINGAR
Akstur utan hraðatakmarkana í pitti kallar á tímarefsingu upp á 30 sekúndur sem tekin er út áður en ekið er út úr pittinum. Sé bláu flaggi ekki sinnt er ökutæki svartflaggað og þarf að aka í gegnum pittinn þar sem tiltal er veitt áður en það fær að fara aftur inn á brautina.
RÁSRÖÐ
Rásröð keppenda er ákveðin með handahófsreglu.
STARFSFÓLK
Við keppnina starfa að lágmarki 15 einstaklingar sem gegna eftirfarandi verkefnum.
Keppnisstjóri (1)
Stýrir allri framkvæmd keppninnar. Tekur ákvarðanir í samráði við aðra starfsmenn en hefur úrslitavald í öllum ákvörðunum og getur beitt hverjum þeim tímarefsingum sem hann telur þörf á til að bregðast við atburðum á meðan á keppni stendur.
Pittstjóri (1+1)
Stjórnar aðgengi að brautinni og öllu sem fram fer í pitti. Hefur með sér einn aðstoðarmann til að sinna erindum í pittinum.
Brautarvörður (5)
Fylgist með öryggi og ástandi brautarinnar og nánasta umhverfis. Flaggar og hefur tiltæk slökkvitæki við brautina.
Þjónustubílstjóri (1)
Er til taks við þjónustubíl frá ræsingu og allt til loka keppninnar.
Öryggisbílstjóri (1)
Er til taks við öryggisbíl frá ræsingu og allt til loka keppninnar.
Öryggisfulltrúi (1)
Skoðar ökutæki fyrir keppni og fylgist með eldsneytisáfyllingu ökutækja í pittinum, eða veitir öðrum heimild til eftirlits.
Vettvangsstjóri (1+1)
Sinnir eftirliti í kringum pitt og áhorfendasvæði og sér til þess eftir fremsta megni að áhorfendur, ljósmyndarar og aðrir sem eru á ferð í kringum brautina haldi sig utan hættusvæða eða innan markaðra öruggra svæða.
Tímavörður (1+1)
Sinnir tímavörslu, stjórnar tímatöku og mælir og fylgist með skylduhléum og öðru sem varðar tímatökuna.
Öryggismál
Flögg eru samkvæmt reglum AKÍS. Tímamæling er ekki stöðvuð þó gult flagg fari á loft. Við rautt flagg ákveður keppnisstjóri hvort og þá hvenær og hvað lengi tímamæling er stöðvuð.
Keppnisstjórn
Keppnisstjóri fer með alla stjórn keppninnar og hefur úrslitavald í öllum ákvörðunum sem þarf að taka meðan á keppni stendur.
Brautarverðir
Brautarverðir með flögg og slökkvitæki eru staðsettir í sjónlínu til næsta manns í kringum alla brautina. Brautarvörður sem sér hættu í braut getur tekið ákvörðun um að lyfta gulu eða rauðu flaggi en skal samstundis tilkynna það í talstöð fyrir keppnisstjóra og aðra brautarverði til að heyra. Fari gult eða rautt flagg á loft tekur keppnisstjóri ákvörðun um viðbragð annarra brautarvarða. Aðeins keppnisstjóri getur tekið ákvörðun um að gefa aftur grænt flagg í braut.
Öryggisbíll
Fari gult flagg á loft fer öryggisbíll samstundis af stað í brautina. Óheimilt er að taka fram úr öryggisbíl. Öryggisbíllinn yfirgefur brautina og ekur í pitt þegar það sem gula flagginu veldur hefur verið lagfært og keppnisstjóri telur óhætt að leyfa hefðbundinn akstur að nýju. Á meðan öryggisbíll er í braut heldur talning ekinna hringja áfram. Fari rautt flagg á loft ber ökumanni að stöðva farartæki sitt samstundis en þó þannig að ekki valdi hættu fyrir aðra ökumenn. Keppnisstjóri getur tekið ákvörðun um að senda öryggisbíl í brautina þó rautt flagg stöðvi för allra keppenda. Keppendur skulu leitast við að greiða för öryggisbíls við slíkar aðstæður eins og þurfa þykir.
Þjónustubíll
Þjónustubíll er staðsettur við brautina. Hann er búinn hjartastuðtæki, sjúkrakassa, slökkvitækjum og verkfærum til að taka á helstu málum sem upp geta komið varðandi keppnistæki á meðan á keppni stendur. Þjónustubíll fer í brautina við ákvörðun keppnisstjóra þegar mál atvikast þannig að hans sé þörf. Önnur mál Hvað það sem varðar framkvæmd keppninnar sem ekki er getið um sérstaklega að ofan, í reglum AKÍS um tímaat eða öðrum reglum og leiðbeiningum sem AKÍS og KK starfa eftir, er ákveðið af keppnisstjóra og starfsmönnum keppninnar í sameiningu eftir því sem þörf krefur. Ber keppendum að hlíta fyrirmælum þeirra í hvívetna.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 10000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Símon Helgi Wiium | AÍH | 0 |
2 | Ingólfur Kristján Guðmundsson | KK | 0 |
3 | Gunnlaugur Jónasson | AÍH | 0 |
4 | Auðunn Svafar Guðmundsson | KK | 0 |
5 | Tomas H. Jóhannesson | KK | 0 |
6 | Ingibjörg Erlingsdóttir | KK | 0 |
7 | Andreas Boysen | KK | 0 |
8 | Kjartan Elvar Baldvinsson | KK | 0 |
9 | Jóhann Egilsson | AÍH | 0 |
10 | Aron Óskarsson | KK | 0 |
11 | Ingi Þ. Vöggsson | KK | 0 |
12 | Ómar Hvanndal | KK | 0 |