1.umferð Íslandsmótsins í torfæru.
Keppnin fer fram 4.júlí 2020 kl 13:00 í Ylsgrús við Mýnes, Egilsstöðum.
Skráningu lýkur þann 28.júní kl 23:00 .
Dagskrá
Pittur opnar 8:00
Skoðun hefst 9:00
Pittur lokar 10:00
Keppendafundur 10:30
Brautarskoðun 11:00
Hádegishlé 12:00
Keppni hefst 13:00
Verði breytingar á dagskrá eða öðru sem viðkemur keppninni munu upplýsingar vera birtar inná upplýsingatöflu keppninnar:
START
Viðburðarstjóri: Magnús Ási Ástráðsson
Formaður dómnefndar: Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir
Dómnefnd 1: Emmanuel Burel
Dómnefnd 2: Emmanuel Burel
4. júlí 2020 kl: 13:00
Torfærusvæðið við Egilsstaði
Lýsing:
Torfæra
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 16. júní 2020 kl: 14:01
Skráningu lýkur: 28. júní 2020 kl: 23:00
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
SÉRREGLUR 1. umferðar Íslandsmóts í torfæru 2020
1.1 Keppnin heitir ISAVIA torfæran og er 1. umferð Íslandsmóts í torfæru 2020.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram í Ylsgrús við Mýnes, Egilsstöðum þann 4.júlí 2020.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttaklúbburinn Start á Fljótsdalshéraði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir, Ástráður Ási Magnússon og Magnús Ástráðsson.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur að Koltröð 13, 700 Egilsstaðir.
4.1.1 Þrautirnar liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðarvottað keppnissvæði að ræða.
4.1.2 Þrautirnar eru 6, samtals um það bil 800 metra langar en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu braut skal keyra beint í Park Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.3.2.a Sé tækið ekki í ökuhæfu ástandi skal það flutt í Park Fermé af keppnishaldara.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa þeim þrautum sem eknar verða:
5.1.1.a Flokkur sérútbúinna
5.1.1.b Götubílaflokkur
5.1.1.c Flokkur sérútbúinna götubíla
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 28. júní 2020 klukkan 23:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 5000.
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9.1 KEPPNISNÚMER
9.1 Keppnisnúmer skal vera vel sýnilegt, staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1.a svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla;
9.2.1.b svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúna götubíla;
9.2.1.c svartir stafir á appelsínugulum bakgrunni fyrir götubíla:
9.2.1.d 35 cm á hæð og 25cm á breidd fyrir alla flokka.
9.3 Þeir bílar sem ekki hafa keppnisnúmer fá því úthlutað hjá keppnisráði í torfæru.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 9.5 AÐRAR MERKINGAR
9.5.1 Keppandi skal halda lausu plássi á ökutæki sínu fyrir auglýsingu á vegum keppnishaldara.
9.5.1.b Keppnishaldara er heimilt að sleppa keppanda við að merkja ökutæki með auglýsingu hans gegn greiðslu gjalds að upphæð kr. 20.000 fyrir hvert ökutæki.
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa hafi þau hlotið keppnisskoðun.
10.2.1 Bílar skulu tilbúnir í keppni í rásröð kl 12:50
10.2.1.a Fyrsti bíll er ræstur kl 13:00
10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1. um rásröð í torfærureglum.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Sérútbúnir bílar, sérútbúnir götubílar og götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn. Hún er aðgengileg á vefnum á slóðinni https://nn.is/Yg72R
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um torfæru.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stiga- og tímaverðir hafa tekið þau saman.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
14.1.1 Dómnefnd skipa Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir, sem jafnframt er formaður hennar og Kristdór Þór Gunnarsson.
14.1.1.a Framkvæmdanefnd hyggst útnefna þriðja dómnefndarmann fyrir upphaf keppni og verður nafn hans birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar það liggur fyrir.
14.2.1 Keppnis- og brautarstjóri er Magnús Ástráðsson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Jónas Jónasson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Ingvar Birkir Einarsson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega þar sem sjúkrabíll verður á staðnum ef komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: START
Keppnisgjald: 4000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Steingrímur Bjarnason | TKS | 20 |
2 | Óskar Jónsson | AÍNH | 17 |
3 | Ágúst Halldórsson | START | 15 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ingólfur Guðvarðarson | TKS | 20 |
2 | Haukur Viðar Einarsson | KK | 17 |
3 | Skúli Kristjánsson | AÍNH | 15 |
4 | Ólafur Bragi Jónsson | START | 12 |
5 | Stefán Bjarnhéðinsson | BA | 10 |
6 |
Helgi Garðarsson
Aðst: Finnur Aðalsbjörns |
BA BA |
8 |
7 | Ásmundur Ingjaldsson | START | 6 |
8 | Aron Ingi Svansson | TKS | 4 |
9 | Jóhann Gunnlaugsson | AÍFS | 2 |
10 | Guðmundur Óskar Guðmundsson | START | 1 |
11 | Guðmundur Elíasson | AÍH | 0 |
12 | Sigurður Ingi Sigurðsson | AÍNH | 0 |
13 | Óskar Ólafur Björnsson | AÍNH | 0 |
14 | Helgi Sveinn Heimisson | START | 0 |