Rallý Reykjavík 2020
Dagskrá
10.Ágúst – Skráning hefst (Keppnisgjald 35.000 kr per ökumann)
Starfsmannakvöð er 25.000kr. Til að skrá starfsmenn þarf að senda póst á emailið : keppnisstjorn@bikr.is þar þarf að koma fram nafn , símanúmer og aldur starfsmanna.
Þetta er 3.daga keppni og væri gott ef starfsmenn gætu verið alla dagana en alls ekki nauðsýn. Keppendur geta því miður ekki skráð starfsmenn og ákveðið stöðu þeirra - starfsmannastjóri ákveður það og sér um að kenna öllum þá stöðu sem þeir eru settir í.
Ef þú sérð hinsvegar ekki fram á geta skaffað starfsmenn biðjum við þig vinsamlegast að millifæra starfsmannakvöð inn á eftirfarandi reikning.
Rknr. 0130-26-000796 Kt. 571177-0569
Þetta verður að gerast áður en keppnisskoðun hefst annars fær áhöfn ekki rásleyfi
Starfsmenn þurfa að geta mætt á starfsmannafund þann 2. september klukkan 18:00
Keppendur sem skaffa starfsmenn sjá til þess að starfsmenn sínir mæti á fundinn. Ef starfsmaður kemst ekki þarf að láta keppnisstjóra vita. Ef starfsmaður kemur ekki , þarf keppandi að mæta í staðinn. Komi hvorki starfsmaður eða keppandi fær sú áhöfn sekt uppá 25.000kr.
Tímamaster birtur
24.Ágúst – Seinni skráning hefst (Keppnisgjald 45.000 kr per ökumann)
30.Ágúst– Skráningu lýkur kl 23:59
1.September – Keppnisskoðun í Frumherja kl 18:00 ( Hádegismóar 8 110 Reykjavík )
Við viljum minna á að refsing er gefin fyrir að mæta of seint í keppnisskoðun. (Refsing 10 sec fyrir hverja byrjuðu mínútu)
Rásröð Birt
20:00 Fundur með keppendum , staðsetning auglýst síðar.
Skyldumæting er á fundinn, ef keppandi sér sig ekki fært um að mæta skal hann senda formlegt bréf sem inniheldur ástæðu fyrir fjarvistinni á keppnisstjóra fyrir fundinn.
Vinsamlegast virðið tímasetningu og mætið á réttum tíma.
2.September - Starfsmannafundur kl.18:00 , staðsetning auglýst síðar
3.September– Keppni byrjar. Mæting kl. 16:00
Parkc Fermé lokar kl. 16:15
Parkc Fermé opnar kl. 16:45
Fyrsti Bíll kl.17:00
5.Sepetmber - Keppni lokið kl. 15:15
Verðlaunaafhending ..
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu í dag þá verðum við aðeins að sjá til varðandi verðlaunaafhendinguna.
Hún verður alveg 100% , hvernig hún verður er stóra spurningin.
BÍKR
Viðburðarstjóri: Hanna Ragnarsdóttir
Öryggisfulltrúi: Guðmundur Örn Þorsteinsson
Skoðunarmaður: Kristinn Snær Sigurjónsson
Formaður dómnefndar: Ólafur Guðmundsson
Dómnefnd 1: Páll Halldór Halldórsson
Dómnefnd 2: Guðbergur Reynisson
3. september 2020 kl: 16:00
Sérleiðir í rally
Lýsing:
Rally
Íslandsmeistaramót -
Skráning hefst: 10. ágúst 2020 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 30. ágúst 2020 kl: 23:59
AB Varahlutaflokkur - óbreyttir bílar án túrbínu: 000000 kr.-
Eindrif-X: 35000 kr.-
Flokkur A: 35000 kr.-
Flokkur B: 35000 kr.-
Jeppar: 35000 kr.-
AB Varahlutaflokkur - óbreyttir bílar án túrbínu
Eindrif-X
Flokkur A
Flokkur B
Jeppar
1.1 Keppnin er 4. umferð Íslandsmótsins í rallý 2020.
1.2 Keppnin fer fram á/í Reykjavík og nágrenni 3., 4. og 5. september 2020.
1.3 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir rallý og þessum sérreglum.
1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.6 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur, til heimilis að Engjavegi 6
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd keppninnar skipa Hanna Rún Ragnarsdóttir, Guðmundur Örn Þorsteinsson og Hlöðver Magnús Baldursson.
3.1.1 Formaður framkvæmdanefndar er Hanna Rún Ragnarsdóttir.
3.2 Framkvæmdanefndar keppninnar er til heimilis í Smiðjuvegi 34.
3.3 Sími framkvæmdanefndar keppninnar er 6929594 (alla jafna er þetta síminn hjá Hönnu Rún ).
3.4 Netfang framkvæmdanefndar keppninnar er keppnisstjorn@bikr.is .
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
4.1 Heildin
4.2 Flokkur A
4.3 Flokkur B
4.4 AB Varahlutaflokkur
4.5 Jeppaflokkur
4.6 Eindrif X
6.1 Engin takmörk eru á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppninnar.
6.2 Skráning fer eingöngu fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 30.08.2020 kl. 23:59.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 35.000 kr
6.6.a Það skal greitt í gegnum rafræna skráningarformið á vef AKÍS um leið og skráð er til keppni.
6.6.b Innifalið í keppnisgjaldi er:
6.6.b.i þátttökuréttur í keppninni.
6.6.b.ii keppnisskírteini keppanda og áhafnar, útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
Opinber upplýsingatafla keppninnar er staðsett á heimilisfangi framkvæmdanefndar. Jafnframt verður stafræn upplýsingatafla á slóðinni www.bikr.is
Á báðum þessum töflum verða birtar allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
12.1 Keppendur og að minnsta kosti einn úr hverri áhöfn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
12.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
12.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
12.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla.
13.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rallý.
13.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
13.3 Bráðabirgðaúrslit verða birt á upplýsingatöflu keppninnar samkvæmt tímaáætlun.
13.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
14.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti yfir heildina.
14.2 Flokkaverðlaun verða tilgreind á upplýsingatöflu keppninnar þegar skráningarfresti lýkur.
15.1.1 Dómnefnd skipa Ólafur Guðmundsson, sem jafnframt er formaður hennar, Páll Halldór Halldórsson og ***.
15.2.1 Brautarstjóri (keppnisstjóri) og formaður framkvæmdanefndar er Hanna Rún Ragnarsdóttir
15.2.2 Skoðunarmaður er Kristinn Snær Sigurjónsson.
15.2.3 Öryggisfulltrúi er Guðmundur Örn Þorsteinsson
15.2.4 Sjúkrafulltrúi er Hildur Björk Þórðardóttir.
15.2.5 Umhverfisfulltrúi er Hjalti Snær Kristjánsson
15.2.6 Starfsmannastjóri er Hanna Rún Ragnarsdóttir
15.2.7 Tengiliður keppenda er Hlöðver Baldursson
15.3.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Samkvæmt grein 3.6.4 í rallýreglum er keppnishaldara heimilt að setja takmarkanir á hvar og hvenær gera má við ökutæki í keppni. Hvar má gera við kemur fram á upplýsingatöflu keppninnar.
Samkvæmt grein 3.8.23 í rallýreglum er keppnishaldara heimilt að koma upp hindrunum / þrengingum á sérleiðum. Og verður staðsetning þeirra birt í upplysingartöflu keppninnar.
Djúpavatn SS16 , sjá rallýreglur grein 4.10.3.a
Samkvæmt grein 7.3.1 í rallýreglum er keppnishaldara heimilt að selja auglýsingar á keppnisbíla. Hyggist hann gera það skal geta um það í sérreglum keppninnar.
Skipuleggjandi: BÍKR
Veldu flokk til að sjá skráningargjöld
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Daníel Sigurðarson
Aðst: Erika Eva |
AÍH AÍH |
32 |
2 |
Gunnar Karl Jóhannesson
Aðst: Ísak Guðjónsson |
BÍKR BÍKR |
25.5 |
3 |
Halldór Vilberg Ómarsson
Aðst: Valgarður Thomas Davíðsson |
AÍFS AÍFS |
19 |
4 |
Fylkir A. Jónsson
Aðst: Heiða Karen Fylkisdóttir |
AÍH AÍH |
15 |
5 |
Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Sigurjón Þór Þrastarson |
BÍKR AÍFS |
13 |
6 |
Baldur Haraldsson
Aðst: Katrín María Andrésdóttir |
BS BS |
9 |
7 |
Ívar Örn Smárason
Aðst: Guðni Freyr Ómarsson |
BÍKR BÍKR |
6 |
8 |
Kristján Pálsson
Aðst: Tbn |
BÍKR BÍKR |
4.5 |
9 |
Gedas Karpavicius
Aðst: Arturas Arcisauskas |
BÍKR BÍKR |
0 |
10 |
Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson |
BÍKR BÍKR |
0 |
11 |
Almar Viktor Þórólfsson
Aðst: Magnús Ragnarsson |
AÍFS AÍFS |
0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Ívar Örn Smárason
Aðst: Guðni Freyr Ómarsson |
BÍKR BÍKR |
32 |
2 |
Kristján Pálsson
Aðst: Tbn |
BÍKR BÍKR |
25.5 |
3 |
Almar Viktor Þórólfsson
Aðst: Magnús Ragnarsson |
AÍFS AÍFS |
0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Daníel Sigurðarson
Aðst: Erika Eva |
AÍH AÍH |
33 |
2 |
Halldór Vilberg Ómarsson
Aðst: Valgarður Thomas Davíðsson |
AÍFS AÍFS |
24.5 |
3 |
Gedas Karpavicius
Aðst: Arturas Arcisauskas |
BÍKR BÍKR |
0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Gunnar Karl Jóhannesson
Aðst: Ísak Guðjónsson |
BÍKR BÍKR |
33 |
2 |
Fylkir A. Jónsson
Aðst: Heiða Karen Fylkisdóttir |
AÍH AÍH |
22.5 |
3 |
Skafti Svavar Skúlason
Aðst: Sigurjón Þór Þrastarson |
BÍKR AÍFS |
20 |
4 |
Baldur Haraldsson
Aðst: Katrín María Andrésdóttir |
BS BS |
16 |
5 |
Baldur Arnar Hlöðversson
Aðst: Heimir Snær Jónsson |
BÍKR BÍKR |
0 |