Kvartmíluklúbburinn heldur Íslandsmót í drifti 2021 á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni dagana 16. og 17. júlí 2021.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Minni götubílaflokkur
Götubílaflokkur
Opinn flokkur
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
DAGSKRÁ Íslandsmóts í drifti 2021
16. júlí
18:00 Pittur opnar / mæting keppenda
18:15 Skoðun hefst
19:00 Æfing hefst
19:45 Pittur lokar
20:00 Skoðun lýkur
22:00 Æfingu lýkur
17. júlí
08:30 Pittur opnar / mæting keppenda
09:30 Pittur lokar
09:30 Keppendafundur
10:00 Forkeppni
- Minni götubílaflokkur
- Götubílaflokkur
- Opinn flokkur
12:30 Útsláttarkeppni
- Opinn flokkur
- Götubílaflokkur
- Minni götubílaflokkur
KK
Viðburðarstjóri: Halldór Jóhannsson
Öryggisfulltrúi: Baldvin Hansson
Skoðunarmaður: Ingólfur Arnarson
Formaður dómnefndar: Jón Bjarni Jónsson
Dómnefnd 1: Ragnar Róbertsson
Dómnefnd 2: Tryggvi Magnús Þórðarson
Frá: 16. júlí 2021 kl: 20:00
Til: 17. júlí 2021 kl: 18:00
Hringakstursbraut KK
Lýsing: 2412 metrar
Drift
Íslandsmeistaramót - 3. umferð
Skráning hefst: 8. apríl 2021 kl: 00:00
Skráningargjald: 10000 kr.-
Skráningargjald hækkar 21. apríl 2021: 13000 kr.-
Skráningu lýkur: 14. júlí 2021 kl: 23:00
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/Aj9q7 |
Í samráði við AKÍS hefur keppni hefur verið frestað til 17. júlí 2021 og breytist grein 1.3 í sérreglum keppninnar til samræmis. Skráningarfrestur er lengdur og lýkur eftirskráningu þann 14. júlí 2021 kl. 23:00 og breytist grein 6.4 í sérreglum keppninnar til samræmis.
Jón Bjarni Jónsson, formaður dómnefndar
Tryggvi M. Þórðarson, dómnefndarmaður
Ragnar Róbertsson, dómnefndarmaður
SÉRREGLUR Íslandsmót í drifti 2021 - 1. umferð í mótröð Íslandsmeistaramót - 1. umferð
1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í drifti 2021 - 1. umferð.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir drift og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Kvartmílubrautinni þann 1. maí 2021 kl: 11:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn, til heimilis að Álfhellu, Hafnarfirði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Baldvin Hansson, Ingimunur Helgason og Ingólfur Arnarson.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagsaðstöðu Kvartmíluklúbbsins, Álfhellu, Hafnarfirði.
4.1.1 Leiðin liggur um braut sem hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður skv. leiðarlýsingu sem kynnt verður á keppnisdegi.
4.1.3 Leiðin er um það bil 800 metra löng en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a
Götubílar
Minni götubílar
Opinn flokkur
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Almennri skráningu lýkur þann 21. apríl 2021 23:00:00 og eftirskráningu lýkur þann 28. apríl 2021 23:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt skráningargjald er kr. 10.000 sem hækkar í kr. 13.000 við eftirskráningu.
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á tveimur hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.1 í Pantone Yellow M lit, eða því sem næst;
9.2.2 í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.3 í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.4 í hliðarrúðu að aftan, hægra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.3 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10:30 Æfing
12:30 Forkeppni
- Minni götubílaflokkur
- Götubílaflokkur
- Opinn flokkur
14:00 Útsláttarkeppni
- Minni götubílaflokkur
- Götubílaflokkur
- Opinn flokkur
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu á æfingu.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í útsláttarkeppni ræðst af grein 4.3 í driftreglum 2021.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Minni götubílar, Götubílar og Opinn flokkur.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/Aj9q7 .
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um drift.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
14.1.1 Dómnefnd skipa Jón Bjarni Jónsson, sem jafnframt er formaður hennar, Tryggvi Magnús Þórðarson og Ragnar Róbertsson.
14.2.1 Keppnisstjóri er Baldvin Hansson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Ingólfur Arnarson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Sigfús B Sverrisson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 13000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Arnór Erling Einarsson | AÍH | 106 |
2 | Hrafnkell Rúnarsson | AÍH | 98 |
3 | Guðlaugur Birkir Jóhannsson | AÍH | 90 |
4 | Jóhann Rafn Rafnsson | AÍH | 84 |
5 | Stefán Þór Gunnarsson | AÍH | 69 |
6 | Emil Örn Kristjánsson | AÍH | 67 |
7 | Ragnar Freyr Ragnarsson | AÍH | 66 |
8 | Jökull Ýmir Guðmundsson | AÍH | 66 |
9 | Ingólfur Þór Ævarsson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Hubert Dorozinski | AÍH | 115 |
2 | Kjartan tryggvason | BA | 100 |
3 | Sindri Már Ingimarsson | AÍH | 88 |
4 | Páll Sólberg Eggertsson | AÍH | 77 |
5 | Hafliði Harðarson | AÍH | 67 |
6 | Sigmar Freyr Halldórsson | KK | 67 |
7 | Fabian Dorozinski | AÍH | 66 |
8 | Dominik Lesiak | AÍH | 66 |
9 | Telma rut Hafþórsdóttir | AÍH | 4 |
10 | Skúli Ragnarsson | AÍH | 4 |
11 | Hafsteinn Þorberg Thorvaldsson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Jón Þór Hermannsson | AÍH | 112 |
2 | Árni Freyr Gunnarsson | AÍH | 103 |
3 | Ragnar Már Björnsson | KK | 86 |
4 | Þórir Mar Ingvason | AÍH | 75 |
5 | Birgir Sigurðsson | KK | 71 |
6 | Sigurbergur Eiríksson | AÍH | 67 |
7 | Valgeir Hugi Halldórsson | BA | 66 |