Kvartmíluklúbburinn heldur 1. umferð Íslandsmóts í kappakstri 2021 á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 29. maí 2021.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Bílar - FORMULA 1000 kappakstursbílar
Bílar - Standard 1000 kappakstursbílar
Bílar - Opinn flokkur kappakstursbíla
Bílar - Opinn flokkur fjöldaframleiddra bíla
Bílar - Hot Wheels
Bílar - Hot Wheels Junior
Bílar - Hot Wheels SPORT
Bílar - Hot Wheels TURBO
Ræst er í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
.Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
09:00 Mæting keppenda
09:15 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:30 Keppendafundur
11:00 Tímataka
12:00 Fyrri keppnislota
13:00 Seinni keppnislota
14:30 Lokaúrslit birt
KK
Viðburðarstjóri: Baldvin Hansson
Öryggisfulltrúi: Ingólfur Arnarson
Skoðunarmaður: Kjartan Viðarsson
Formaður dómnefndar: Jón Bjarni Jónsson
Dómnefnd 1: Tryggvi Magnús Þórðarson
Dómnefnd 2: Ragnar Róbertsson
29. maí 2021 kl: 11:00
Hringakstursbraut KK
Lýsing: 2412 metrar
Kappakstur
Íslandsmeistaramót - 1. umferð
Skráning hefst: 14. maí 2021 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 26. maí 2021 kl: 23:00
Formula 1000 kappakstursbílar
Hot Wheels
Hot Wheels Junior
Hot wheels SPORT
Hot wheels TURBO
Opinn flokkur fjöldaframleiddra bíla
Opinn flokkur kappakstursbíla
Standard 1000 kappakstursbílar
SÉRREGLUR 1. umferðar Íslandsmóts í kappakstri 2021
1.1 Keppnin heitir 1. umferð Íslandsmóts í kappakstri 2021.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir kappakstur og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 29. maí 2021.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Baldvin Hansson og Ingimundur Helgason.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður rangsælis um brautina.
4.1.3 Brautin er um það bil 2412 metra löng.
4.2.1 Pittstjóri stýrir niðurröðun og öðru sem þurfa þykir á pittsvæði.
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára úrslitaferð er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita eða þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
5.1.1 Keppt verður í þeim flokkum ökutækja sem í boði eru samkvæmt keppnisgreinareglum berist að minnsta kosti 3 skráningar í viðkomandi flokk.
5.1.1.a Keppnisstjóra er heimilt að keyra marga flokka samtímis.
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Enginn hámarksfjöldi er settur á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 26. maí 2021 klukkan 23:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 14.000 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á;
6.6.c afnot af virkum tímatökusendi sem hentar í keppnina.
7.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
7.3 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á öllum fjórum hliðum ökutækis og skal það vera:
9.2.a í Pantone 803 C lit, eða því sem næst;
9.2.b í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.2.c í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.2.d í hliðarrúðum að aftan, hægra- og vinstra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.2.e í afturrúðu, bílstjóramegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar en einnig er hægt að kaupa þær af keppnishaldara.
9.3.a Panta þarf keppnisnúmeramerki hjá keppnishaldara í síðasta lagi 7 dögum fyrir keppnisdag.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS, Reglubókar FIA og reglur og lög landsins.
9.5 Keppnishaldara er heimilt að setja auglýsingu undir hliðarrúðu á báðum framhurðum ökutækis sem er allt að 12 cm há og jafn breið og hurðin.
9.6 Heimilt er að setja auglýsingaborða efst á framrúðu hann má þó ekki vera hærri en svo að ökumaður haldi óskertu og öruggu útsýni til aksturs.
10.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur.
10.1.a Afnot af tímatökusendi er innifalið í skráningargjaldi keppninnar.
10.1.b Afsláttur af skráningargjaldi að upphæð kr. 3.000 er veittur keppanda sem notar eigin tímatökusendi - afsláttarkóðinn MYLAPS veitir afsláttinn við skráningu.
10.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
10.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi frjálsri æfingu, tímatökuæfingu eða keppnislotu lokið hjá því ökutæki.
11.1.1 Öll ökutæki sem skráð eru til keppni og standast keppnisskoðun fá að ræsa.
11.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
11.2.1.a Tímatökuæfing klukkan 11:00. Ræst á ferð án fylgdarbíls.
11.2.1.b Fyrri kappaksturslota klukkan 12:00. Ræst úr kyrrstöðu.
11.2.1.c Seinni kappaksturslota klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.
11.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja við ræsingu á frjálsri æfingu og tímatökuæfingu.
11.3.2 Röð ökutækja við ræsingu fyrri kappaksturs ræðst af tímum á tímatökuæfingu, hraðasta ökutæki ræsir fremst, næst hraðasta næst fremst og svo koll af kolli.
11.3.3 Röð ökutækja við ræsingu seinni kappaksturs er öfug röð úrslita fyrri kappaksturs fyrir sæti 1-10 og óbreytt röð fyrir sæti 11 og upp úr.
11.3.4 Í fyrri og síðari kappakstri er ökutækjum raðað í tvær raðir á miðri braut, vinstri röð við ráslínu og hægri röð um það bil bíllengd aftar. Á milli raðana skulu vera um það bil tvær bílbreiddir.
11.3.5 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
12.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
12.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
12.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
12.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum. Hún er aðgengileg á slóðinni http://nn.is/Db87C - Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
12.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
12.4.a Kærugjald og annar kostnaður því tengt ræðst af gjaldskrá AKÍS sem er aðgengileg á vef AKÍS.
12.4.b Kærugjald skal greitt til dómnefndar sem veitir því viðtöku fyrir hönd AKÍS.
12.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
12.5.a Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
12.5.b Reglur AKÍS um dróna.
13.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um kappakstur.
13.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
13.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.
13.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
14.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum í hverjum flokki sem ekinn er.
15.1.1 Dómnefnd skipa Jón Bjarni Jónsson, sem jafnframt er formaður hennar, Tryggvi Þórðarson og Ragnar Róbertsson.
15.2.1 Keppnis- og brautarstjóri er Baldvin Hansson.
15.2.2 Skoðunarmaður er Kjartan Viðarsson.
15.2.3 Öryggisfulltrúi er Ingólfur Arnarson.
15.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
15.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
15.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
15.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
15.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
15.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
15.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
15.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
15.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
15.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 13000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Jóhann Egilsson | KK | 47 |
2 | Tomas H. Jóhannesson | KK | 46 |
3 | Gunnlaugur Jónasson | KK | 31 |
4 | Stefán Sölvason | KK | 24 |
5 | Ingi Þór Aðalsteinsson | KK | 20 |
6 | Guðni Þorbjörnsson | KK | 16 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Daníel Hinriksson | KK | 53 |
2 | Birgir Kristjánsson | AÍH | 40 |
3 | Sverrir Snær Ingimarsson | AÍH | 31 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Emil Þór Reynisson | AÍH | 0 |