Kvartmíluklúbburinn heldur KFC torfæruna - 5. umferð Íslandsmóts í torfæru 2021 á torfærusvæði klúbbsins (Ingólfsfelli) í Kapelluhrauni þann 7. ágúst 2021.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Sérútbúnir bílar
Sérútbúnir götubílar
Götubílar
Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
Mæting keppenda kl. 7:30
Skoðun hefst kl. 7:30
Pittur lokar kl. 9:00
Skoðun lýkur kl 10:00
Keppendafundur og brautarskoðun kl. 10:00
Keppni hefst kl. 11:00
Lokaúrslit birt kl. 17:00
KK
Viðburðarstjóri: Baldvin Hansson
Öryggisfulltrúi: Baldur Gíslason
Skoðunarmaður: Kjartan Viðarsson
Formaður dómnefndar: Aðalsteinn Símonarson
Dómnefnd 1: Sigurjón Andersen
Dómnefnd 2: Gunnar Ásgeirsson
7. ágúst 2021 kl: 11:00
Torfærusvæði KK (Ingólfsfell)
Lýsing:
Torfæra
Íslandsmeistaramót - 5. umferð
Skráning hefst: 23. júlí 2021 kl: 19:00
Skráningargjald: 7000 kr.-
Skráningargjald hækkar 2. ágúst 2021: 13000 kr.-
Skráningu lýkur: 4. ágúst 2021 kl: 23:00
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
1.1 Keppnin heitir KFC torfæran og er 5. umferð Íslandsmeistaramóts í torfæru 2021.
1.2 Keppt er í torfæru eins og hún er skilgreind í keppnisgreinarreglum AKÍS.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru og þessum sérreglum.
1.4 Keppnin fer fram á torfærusvæð Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni, þann 7. ágúst 2021.
1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.6 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.7 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Baldvin Hansson, Ingólfur Arnarson, Baldur Gislason, Ingimundur Helgason.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði..
GREIN 4.1 ÞRAUTIRNAR
4.1.1 Þrautirnar liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðarvottað keppnissvæði að ræða.
4.1.2 Þrautir eru 6 í hverjum flokki, samtal um það bil 70 - 800 metra langar en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
4.1.3 Pitthliðið verður staðsett við pitt, þar sem að mætingarfresti lýkur (60 sek við ráshlið).
GREIN 4.2 PARC FERMÉ
4.2.1 Parc Fermé er staðsett í pittsvæði viðgerðir eru leyfðar og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistækið í Parc Fermé.
4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu þraut skal keyra í Parc Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.2.3 Sé ökutækið ekki í ökuhæfu ástandi skal það flutt í Parc Fermé af keppnishaldara.
4.2.4 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit séu birt.
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:
5.1.1.a Götubílar - Street Legal
5.1.1.b Sérútbúnir - Unlimited
5.1.1.c Sérútbúnir götubílar - Modified
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.1.1 Leyfilegur fjöldi aðstoðarmanna er 8 fyrir hvern skráðan keppnisbíl.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Almenn skráning stendur til 1. ágúst 2021 klukkan 23:00:00 en eftirskráningu lýkur þann 4. ágúst 2021 klukkan 23:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald (skráningargjald) í almennri skráningu er kr. 8.000 en kr. 14.000 í eftirskráningu og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.
7.1 Öll ökutæki sem taka þátt í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9.1 KEPPNISNÚMER
9.1 Keppandi skal merkja ökutæki sitt sjálfur í samræmi við Torfærureglur - 2021 grein 7.1.
9,2 Keppnisnúmer skal vera vel sýnilegt, staðsett á tveimur hliðum ökutækja og skal það vera:
9.2.1.a svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla;
9.2.1.b svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúnum götubíla;
9.2.1.c svartir stafir á appelsínugulum bakgrunni fyrir götubíla:
9.2.1.d 35 cm á hæð og 25 cm breidd á alla flokka.
9.3 Þeir bílar sem ekki hafa keppnisnúmer fá því úthlutað hjá keppnisráði í torfæru.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Bílar skulu vera tilbúnir í keppni í rásröð kl 10:55.
10.2.1.a Fyrsti bíll er ræstur kl 11:00.
10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldar og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1 um rásröð í torfærureglum
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessari röð: Götubílar, Sérútbúnir bílar og Sérútbúnir götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum http://nn.is/d8A9F
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um torfæru.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum auk tilþrifaverðlauna.
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Magnús Þórðarson, sem jafnframt er formaður hennar, Sigurjón Andersen og Viktor Böðvarsson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Baldvin Hansson.
14.2.2 Skoðunarmaður eru Kjartan Viðarsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Aðalsteinn Símonarson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.4.b Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
13.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
13.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 13000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Óskar Jónsson | AÍNH | 20 |
2 | Steingrímur Bjarnason | TKS | 17 |
3 | Haukur Birgisson | STIMPILL | 15 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Skúli Kristjánsson | AÍNH | 20 |
2 | Geir Evert Grìmsson | TKS | 17 |
3 | Guðmundur Elíasson | AÍH | 15 |
4 | Snorri Þór Árnason | TKS | 12 |
5 |
Fjölnir Guðmannsson
Aðst: Kristján Skjóldal |
BA BA |
10 |
6 | Haukur Viðar Einarsson | KK | 8 |
7 | Þórður Atli Guðnýjarson | AÍNH | 6 |
8 | Ingvar Jóhannesson | TKS | 4 |
9 | Sigurður Ingi Sigurðsson | AÍNH | 2 |
10 | Kristjan Finnur Sæmundsson | TKS | 1 |
11 |
Páll Jónsson
Aðst: Óskar Ólafur Björnsson |
AÍNH AÍNH |
0 |
12 | Atli Jamil Ásgeirsson | AÍH | 0 |
13 | Jóhann Gunnlaugsson | KK | 0 |