2.umferð Íslandsmótsins í Rallycross
Skráningu lýkur 3.júní klukkan 23:59
Viljum benda keppendum á að kynna sér sérreglur 6.8 á meðan núverandi samkomutakmarkanir eru í gildi, breytingar vegna tilslakana verða kynntar á upplýsingatöflu
Við gefum út nánari reglur með service þegar nær dregur.
Það er von að við getum fjölgað aðeins í hópnum
6.8 Leyfður fjöldi aðstoðarmanna er 1 fyrir hvern skráðan keppnisbíl (v. Covid)
6.8.1 Fari fjöldi skráðra keppanda samanlagt í öllum flokkum yfir 25 þarf að skoða það sérstaklega hvort hægt verði að halda keppnina vegna samkomutakmarkana.
6.8.2 Verði tilslakanir á sóttvarnarreglum vegna covid-19 fyrir keppnisdag verður fjölgað leyfðum aðstoðarmönnum með hverju liði, verður það þá auglýst sérstaklega á auglýsingatöflu keppninnar.
Fyrir frekari upplýsingar skal hafa samband við Lindu D.Jóhannsdóttir S:696 2520 eða varsla@simnet.is
Við skráningu í unglingaflokk þarf að setja í afsláttarkóða: unglingar
Athugið að eingöngu keppendur í unglingaflokk geta nýtt sér þennan kóða
ATH
Skráningu lýkur 3. júní klukkan 23:59
Frekari upplýsingar um félagið má finna inni á vefsvæði okkar www.aihsport.is
Dagskrá:
Mæting er kl 8:00
pittur lokar kl 9:00
Skoðun byrjar kl 8:00
Tímatökur hefjast kl 10:00
Fundur með starfsfólki 12:00
Fundur með keppendum kl 12:30
Keppni hefst kl 13:00
Hlé í 10-15 min fyrir úrslitariðil
Úrslitariðlar keyrðir
Áætluð Úrslit kl 18:00
Áætluð Kærufrestur liðinn kl 18:30
Áætluð Formleg tilkynning úrslita og verðlaunaafhending kl 18:30
AÍH
Viðburðarstjóri: Linda Dögg Jóhannsdóttir
Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson
Skoðunarmaður: Hilmar B Þràinsson
Formaður dómnefndar: Aðalsteinn Símonarson
Dómnefnd 1: Heimir Snær Jónsson
Dómnefnd 2: Sigurður Arnar Pálsson
6. júní 2021 kl: 13:00
Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir:
Hringakstursæfingar
Drift,
Gokart,
Drift,
Mótorhjól,
980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir:
Rallycross,
1000m Motocrossbraut,
Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
Rallycross
Íslandsmeistaramót - 2.umferð
Skráning hefst: 22. maí 2021 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 3. júní 2021 kl: 23:59
1400 flokkur
2000 flokkur
4x4 Non Turbo
Opinn flokkur
Standard 1000cc flokkur
Unglingaflokkur
Viðhangandi er úrskurður dómnefndar vegna keppanda nr. 11
Hala niður viðhengi
Dómnefnd staðfestir að Bráðabirgðaúrslit útgefin af keppnisstjóra í Skjali 11 kl. 19.59 eru lokaúrslit keppninnar.
Parc Ferme er opið.
Viðhangandi eru bráðabirgðaúrslit keppninna.
Kærufrestur hefst kl. 19.59
Hala niður viðhengi
Dómnefnd hefur fellt viðhangandi úrskurð er varðar ökutæki nr. 6 og 11
Hala niður viðhengi
Dómnefnd hefur fellt viðhangandi úrskurð varðandi ökutæki 2 og 22
Hala niður viðhengi
Dómnefnd hefur yfirfarið röðun í úrslitariðla.
Leiðrétting hefur verið gerð á röðun ökutækja í A úrslitum unglingaflokks
Hala niður viðhengi
Hér í viðhengi má sjá röðun í úrslitariðla.
Hala niður viðhengi
Dómnefnd birtir hér í viðhengi úrskurð er varðar ökutæki nr. 202 og 272
Hala niður viðhengi
Dómnefnd staðfestir skýrslu skoðunarmann um að öll mætt ökutæki hafi fengið rásleyfi.
Ökutæki nr. 81 í unglingaflokki og ökutæki nr. 433 í 4WD non turboflokki mættu ekki til skoðunar.
Staðreyndadómarar í keppninni eru:
Dómnefnd hefur úrskurðað í máli sem henni barst frá keppnisstjóra. Úrskurðinn má finna í viðhengi.
Hala niður viðhengi
Dómnefnd gerir eftirfarandi breytingu á sérreglum keppninnar:
Grein 14.2.1 var "Keppnisstjóri er Linda D.Jóhannsdóttir."
Grein 14.2.1 verður "14.2.1 Keppnis- og brautarstjóri er Linda D.Jóhannsdóttir."
Dómnefndarformaður Dómnefndarmaður Dómnefndarmaður
Aðalsteinn Símonarson Heimir Snær Jónsson Sigurður Arnar Pálsson
Hér er listi yfir flokka og rásnúmer
Hala niður viðhengi
Það verður 1 pittur, 2 service menn á bíl, unglingar sem hafa ekki náð 18 ára aldri verða að hafa 1 forráðaman og meiga hafa 2 service ..
Ég kem til með að raða inní nýja pittinn okkar og það verða allir að stoppa í húsinu og skila blaði með nafni og kennitölu a service fólkinu.
Skoðun byrjar kl 8 og ég vil biðja alla að reyna að láta þetta ganga hratt og vel fyrir sig
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í Rallycrossi 2021 - 2. umferð.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir rallycross og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg þann 6.júní 2021.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður, eða vegna samkomutakmarkanna.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er AkstursÍþróttafélag Hafnafjarðar (AÍH)
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Linda D.Jóhannsdóttir og Ari H. Hjaltason
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagshúsnæði AÍH í Hafnarfirði.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 Brautin
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður Réttsælis um brautina.
4.1.3 Brautin er 850 metra löng
4.1.4 Hver riðill er meira en 5 hringir, eða u.þ.b. 4.650 m.
4.1.4.a Þegar fyrsta ökutæki í riðli ekur í 6. skipti yfir endalínu er flaggað á það til merkis um lok riðils.
4.1.4.b Öll önnur ökutæki í riðlinum verða flögguð út í næsta sinn sem þau fara yfir endalínu.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Pitturinn nær frá stjórnstöð og framfyrir félagsheimilið
GREIN 4.3 PARC FERMÉ
4.3.1 Parc Fermé er pitturinn
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pitt.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita eða þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja :
5.1.1.a
Unglingaflokkur
1000cc flokkur
1400cc flokkur
2000cc flokkur
4x4 non turbo flokkur
Opinn flokkur
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 3.júní 2021 23:59
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt skráningargjald er kr. 16.000
6.6a Unglingaflokkur greiðir 8.000 með sérstökum afsláttarkóða
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS bætist svo við, ef við á.
6.8 Leyfður fjöldi aðstoðarmanna er 1 fyrir hvern skráðan keppnisbíl (v. Covid)
6.8.1 Fari fjöldi skráðra keppanda samanlagt í öllum flokkum yfir 25 þarf að skoða það sérstaklega hvort hægt verði að halda keppnina vegna samkomutakmarkana.
6.8.2 Verði tilslakanir á sóttvarnarreglum vegna covid-19 fyrir keppnisdag verður fjölgað leyfðum aðstoðarmönnum með hverju liði, verður það þá auglýst sérstaklega á auglýsingatöflu keppninnar.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
7.3 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 TÍMATÖKUSENDIR
9.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur.
9.1.a Keppendur sem eiga ekki slíkan búnað geta leigt hann af keppnishaldara á 3.000kr, pr. keppni
9.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
9.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi tímatöku lokið hjá því ökutæki.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki sem standast skoðun á keppnisdegi fá heimild til að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímatökur Kl:10:00 Ræst á ferð án fylgdarbíls.
10.2.1.a.i Í tímatökum ekur hvert ökutæki einn tímamældan hring
10.2.1.b Ræsing í fyrsta riðil 13:00 Ræst úr kyrrstöðu
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu í tímatökur.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í 1.heat ræðst af grein 3.6.2 í rallycross reglum.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Unglingar, 1000cc, 1400cc,2000cc,4x4 og opinn flokkur
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.4.a Verði úrslitaumferð í flokk ekin í tveimur riðlum munu B úrslit ekin á undan A úrslitum.
10.3.5 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.6 Ef fjöldi ökutækja í flokki, öðrum en unglingaflokki, er meiri en hægt er að keyra í einu í brautinni samkvæmt grein 3.8.4 Keppnisgreinareglum fyrir rallvcross, verður ökutækjum skipt upp í riðla.
10.3.6.a Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1 o.s.frv.
10.3.6.b Í úrslit komast þau sex ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum.
10.3.6.b.i? Séu tvö eða fleiri jöfn í sæti skal árangur úr fyrstu umferð ráða.
10.3.6.b.ii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um uppröðun.
10.3.7 Ef fjöldi ökutækja í unglingaflokki er meiri en 8 verður þeim skipt upp í riðla.
10.3.7.a Ef fjöldi ökutækja er 9-16:
10.3.7.a.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1, o.s.frv.
10.3.7.a.ii Í A úrslit komast þau fjögur ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-8 í lokaúrslitum.
10.3.7.a.iii Í B úrslit komast þau fjögur ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 9-16 í lokaúrslitum.
10.3.7.b Ef fjöldi ökutækja er 17-24:
10.3.7.b.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 3, fjórði besti tími í riðil 1, fimmti besti tími í riðil 2, sjötti besti tími í riðil 3, sjöundi besti í riðil 1, o.s.frv.
10.3.7.b.ii Í A úrslit fara þau tvö ökutæki úr hverjum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-6 í lokaúrslitum.
10.3.7.b.iii Í B úrslit fara þau tvö ökutæki úr hverjum riðli sem lenda í 3. og 4. sæti samanlagt úr tveimur þeirra bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 7-12 í lokaúrslitum.
10.3.7.c.? Séu tvö eða fleiri ökutæki jöfn í sæti eftir riðlakeppni skal árangur úr fyrstu umferð ráða röð þeirra.
10.3.6.b.ii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um röð þeirra.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan. Forráðamaður skal fylgja unglingi á þennan fund.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://skraning.akis.is/keppni/286 .
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rallycross.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Aðalsteinn Símonarson, sem jafnframt er formaður hennar, Heimir Snær Jónsson og Sigurður Arnar Pálsson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Linda D.Jóhannsdóttir.
14.2.2 Skoðunarmenn eru: Hilmar B.Þráinsson og Ari H.Hjaltason.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Ari H.Hjaltason.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.2.6 Sóttvarnarfulltrúi er Berglind Björnsdóttir
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: AÍH
Keppnisgjald: 16000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Sindri már axelsson | AÍH | 86 |
2 | Arnar Már Árnason | AÍH | 76 |
3 | Arnar Freyr Árnason | AÍFS | 55 |
4 | Óliver Örn Jónasson | AÍH | 48 |
5 | Heiða Karen Fylkisdóttir | AÍH | 38 |
6 | Guðríður Ósk Steinarsdóttir | AÍH | 36 |
7 | Kristján Örn Aðalbjörnsson | AÍH | 28 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Vikar Karl Sigurjónsson | AÍH | 85 |
2 | Birgir Kristjánsson | AÍH | 77 |
3 | Sverrir Snær Ingimarsson | AÍH | 57 |
4 | þórður ingi ingileifsson | AÍH | 50 |
5 | Sigurbjörg Björgvinsdóttir | AÍH | 32 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Agnar Freyr Ingvason | AÍH | 81 |
2 | Ólafur Tryggvason | AÍH | 79 |
3 | Þröstur Jarl Sveinsson | AÍH | 60 |
4 | Tryggvi Ólafsson | AÍH | 49 |
5 | Magnús Vatnar Skjaldarson | AÍH | 42 |
6 | Guðmundur Jónsson | AÍH | 30 |
7 | kristinn Einarsson | AÍH | 8 |
8 | Svavar Skúli Stefánsson | BA | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Guðmundur Elíasson | AÍH | 87 |
2 | Steinar Nòi kjartansson | AÍH | 72 |
3 | Jóhannes Reginn karlsson | AÍH | 64 |
4 | Adam Kromer | AÍH | 36 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Andri Svavarsson | AÍFS | 76 |
2 | Arnar Elí Gunnarsson | AÍH | 75 |
3 | Konrad Kromer | AÍH | 55 |
4 | Hilmar Pétursson | AÍFS | 52 |
5 | Sævar Þór Snorrason | AÍFS | 47 |
6 | Guðbjörn Már Ólafsson | AÍH | 32 |
7 | Brynjar Ögmundsson | KK | 22 |
8 | Gísli Björn Rúnarsson | TKS | 18 |
9 | Rakel Ósk Einarsdóttir | AÍH | 8 |
10 | Halldór Ingi Helgason | AÍH | 1 |
11 | Bernharð Máni Snædal | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Agnar Ingi Sigurdsson | AÍH | 77 |
2 | Emil Þór Reynisson | AÍH | 71 |
3 | Jóhann Ingi Fylkisson | AÍH | 64 |
4 | Daníel Jökull Valdimarsson | BÍKR | 60 |
5 | Titas Kauneckas | AÍH | 59 |
6 | Bergþóra Káradóttir | AÍFS | 55 |
7 | Daði Freyr Gunnarsson | AÍH | 48 |
8 | Sara Rún Hilmarsdóttir | AÍH | 41 |
9 | Sara Máney Hauksdóttir | AÍH | 26 |
10 | Einar Baldur Jónsson | KK | 25 |
11 | Kristinn Örn Jakobsson | TKS | 24 |
12 | Anton Orri Gränz | AÍH | 22 |
13 | Jóhann Bjarki Jónsson | KK | 16 |
14 | Björgólfur bersi kristinsson | AÍH | 15 |
15 | Elmar Sveinn Einarsson | AÍH | 14 |
16 | Ólafía Kristín Helgadóttir | AÍH | 0 |