3.umferð KFC Íslandsmótsins í Rallycross
Skráningu lýkur 24.júní klukkan 23:59'
Eins og staðan er í dag verða leyfðir 3 í service
** Minni á að keppendur kynni sér vel reglur um öryggisbúnað**
GREIN 5.1 PERSÓNULEGUR BÚNAÐUR ÖKUMANNS 5.1.1
Ökumaður skal hafa eftirfarandi búnað:
5.1.1.a Hjálm, opinn eða lokaðan, samkvæmt stöðlum AKÍS/FIA (FIA tæknilisti N°25).
5.1.1.b HANS búnað með viðurkenningu frá FIA (FIA 8858) eða SFI (SFI 3.3).
5.1.1.c Keppnisgalla sem er lágmark tveggja laga eldheldur heilgalli með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000), SFI (SFI 3.2A/5 eða hærra).
5.1.1.d Keppnishanska með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000) eða SFI (SFI 3.3/ 5 eða hærra).
5.1.1.e Keppnisskó með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000) eða SFI (SFI 3.3/ 5 eða hærra).
5.1.1.f Lambhúshettu með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000) eða SFI (SFI 3.3/ 5 eða hærra).
5.1.2 Myndavélar eða annar aukabúnaður festur á hjálm eða ökumann á annan hátt er bannaður.
Fyrir frekari upplýsingar skal hafa samband við Lindu D.Jóhannsdóttir S:696 2520 eða varsla@simnet.is
Við skráningu í unglingaflokk þarf að setja í afsláttarkóða: unglingar
Athugið að eingöngu keppendur í unglingaflokk geta nýtt sér þennan kóða
ATH
Skráningu lýkur 24. júní klukkan 23:59
Dagskrá: |
Mæting er kl 7:30 - 8:00 |
pittur lokar kl 8:00 |
Skoðun byrjar kl 8:00 |
Tímatökur hefjast kl 10:00 |
Fundur með starfsfólki 11:30 |
Fundur með keppendum kl 12:15 |
Keppni hefst kl 13:00 |
Hlé í 10-15 min fyrir úrslitariðil |
Úrslitariðlar keyrðir |
Áætluð Úrslit ca. kl 19:00 |
Áætluð Kærufrestur liðinn ca kl 19:30 |
Áætluð Formleg tilkynning úrslita og verðlaunaafhending ca kl 19:30 |
AÍH
Viðburðarstjóri: Linda Dögg Jóhannsdóttir
Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson
Skoðunarmaður: Hilmar B Þràinsson
Formaður dómnefndar: Aðalsteinn Símonarson
Dómnefnd 1: Sigurður Arnar Pálsson
Dómnefnd 2: Kristinn Snær Sigurjónsson
27. júní 2021 kl: 13:00
Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir:
Hringakstursæfingar
Drift,
Gokart,
Drift,
Mótorhjól,
980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir:
Rallycross,
1000m Motocrossbraut,
Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
Rallycross
Íslandsmeistaramót - 3.umferð
Skráning hefst: 12. júní 2021 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 24. júní 2021 kl: 23:59
1400 flokkur
2000 flokkur
4x4 Non Turbo
Opinn flokkur
Standard 1000cc flokkur
Unglingaflokkur
Dómnefnd staðfestir að bráðabirgðaúrslit í unglingaflokki birt kl. 20.00 eru lokaúrslit keppninnar í þeim flokki.
Aðalsteinn Símonarson formaður dómnefndar
Sigurður Arnar Pálsson dómnefndarmaður
Þórður Andri McKinstry dómnefndarmaður
Birt hefur verið bráðabirgðaúrslit í unglingaflokki í 3. umferð Íslandsmóstins í Rallycross.
Kærufrestur er 30 mínutur og lýkur klukkan 20:30
Hala niður viðhengi
Fundargerð dómnefndar mánudaginn 28. júní kl. 22.30.
Dómnefnd í KFC Íslandsmót í Rallycrossi 2021 - 3. umferð samþykkir beiðni keppnisstjóra um að birta ný bráðabirgðaúrslit í unglingaflokki, þar sem mannleg mistök urðu til þess að einn keppanda vantar í þau úrslit sem birt voru á upplýsingatöflu keppninnar kl. 18.30 þann 29. júní, sem skjal 19.
Keppnisstjóri skal kynna keppendum í unglingaflokki þessa fyrirætlan.
Ný bráðabirgðaúrslit fyrir unglingaflokk skulu birt á upplýsingatöflu keppninnar kl. 20.00 miðvikudaginn 30. júní, og skal þá hefjast 30 mín. kærufrestur.
---------------------------------------------------------
Aðalsteinn Símonarson formaður dómnefndar
Sigurður Arnar Pálsson dómnefndarmaður
Þórður Andri McKinstry dómnefndarmaður
Dómnefnd staðfestir að birt bráðabirgðaúrslit eru lokaúrslit keppninnar.
Aðalsteinn Símonarson formaður dómnefndar
Sigurður Arnar Pálsson dómnefndarmaður
Þórður Andri McKinstry
Viðhangandi eru bráðabirgðaúrslit keppninnar.
30 mín. kærufrestur hefst.
Hala niður viðhengi
Meðfylgjandi er úrskuður dómnefndar vegna ábendingar keppnisstjóra um ökutæki nr. 606
Hala niður viðhengi
Meðfylgjandi er úrskuður dómnefndar vegna ábendingar keppnisstjóra um ökutæki nr. 6
Hala niður viðhengi
Viðhangandi er röðun í úrslitaumferð
Hala niður viðhengi
Viðhangandi er úrskurður dómnefndar vegna atviks varðandi keppanda nr.n12 sem keppnisstjóri vísaði til dómnefndar.
Hala niður viðhengi
Viðhangandi er úrskurður dómnefndar vegna atviks tengt ökutæki 725 sem keppnisstjóri vísaði til dómnefndar
Hala niður viðhengi
Eftirfarandi staðreyndadómarar starfa við keppnina:
Pittstjóri:
Rúnar Sigurjónsson
Ræsing:
Smári McKinstry
Hanna Rún Ragnarsdóttir
Kolbrún Vignisdóttir
Guðmundur Örn Þorsteinsson
Atvik í braut:
Hanna Rún Ragnarsdóttir
Kolbrún Vignisdóttir
Bryndís Guðfinnsdóttir
Guðmundur Örn Þorsteinsson
Almar Axelsson
Kristófer Fannar Axelsson
Kristján Pálsson
Stefán Sigurðsson
Egill Tryggvason
Dómnefnd gerir eftirfarandi viðbót við sérreglur keppninnar:
"Grein 14.2.1.a Aðstoðar keppnisstjóri er Hanna Rún Ragnarsdóttir"
Riðlaskipting í unglingaflokki í umferð 1-3 er eftirfarandi:
Riðill 1
Ökutæki nr.
1 2
2 66
3 18
4 4
5 29
6 14
7 12
8 23
Riðill 2
Ökutæki nr.
1 3
2 6
3 16
4 20
5 15
6 33
7 21
8 22
Úrskurður vegna keppanda nr. 618 er viðhangandi
Hala niður viðhengi
Úrskurður vegna keppanda nr. 722 er viðhangandi
Hala niður viðhengi
Úrskurður vegna keppanda nr. 722 er viðhangandi
Hala niður viðhengi
Úrskurður vegna keppanda nr. 404 er viðhangandi
Hala niður viðhengi
Úrskurður vegna keppanda nr. 413 er viðhangandi
Hala niður viðhengi
Úrskurður vegna keppanda nr. 221 er viðhangandi
Hala niður viðhengi
Vantaði rásnúmer með fyrra skjali
Hala niður viðhengi
Nafn | Félag | Flokkur |
Hilmar Pétursson | AÍFS | Standard 1000cc flokkur |
Arnar Elí Gunnarsson | AÍH | Standard 1000cc flokkur |
Gísli Björn Rúnarsson | TKS | Standard 1000cc flokkur |
Konrad Kromer | AÍH | Standard 1000cc flokkur |
Andri Svavarsson | AÍFS | Standard 1000cc flokkur |
Ólafur Karl Karlsson | AKÍS | Standard 1000cc flokkur |
Rakel Ósk Einarsdóttir | AÍH | Standard 1000cc flokkur |
Ísak Sigfússon | AÍH | Standard 1000cc flokkur |
Sævar Þór Snorrason | AÍFS | Standard 1000cc flokkur |
Heiða Karen Fylkisdóttir | AÍH | 1400 flokkur |
Arnar Freyr Árnason | AÍFS | 1400 flokkur |
Arnar Már Árnason | AÍH | 1400 flokkur |
Óliver Örn Jónasson | AÍH | 1400 flokkur |
Guðbjörn Már Ólafsson | AÍH | 1400 flokkur |
Kristján Örn Aðalbjörnsson | AÍH | 1400 flokkur |
Guðríður Ósk Steinarsdóttir | AÍH | 1400 flokkur |
Sindri már axelsson | AÍH | 1400 flokkur |
Vikar Karl Sigurjónsson | AÍH | 2000 flokkur |
Sverrir Snær Ingimarsson | AÍH | 2000 flokkur |
Birgir Kristjánsson | AÍH | 2000 flokkur |
Sigurbjörg Björgvinsdóttir | AÍH | 2000 flokkur |
kristinn Einarsson | AÍH | 4x4 Non Turbo |
Guðmundur Jónsson | AÍH | 4x4 Non Turbo |
Ólafur Tryggvason | AÍH | 4x4 Non Turbo |
Tryggvi Ólafsson | AÍH | 4x4 Non Turbo |
Magnús Vatnar Skjaldarson | AÍH | 4x4 Non Turbo |
Þröstur Jarl Sveinsson | AÍH | 4x4 Non Turbo |
Agnar Freyr Ingvason | AÍH | 4x4 Non Turbo |
Anton Orri Gränz | AÍH | Unglingaflokkur |
Emil Þór Reynisson | AÍH | Unglingaflokkur |
Daníel Jökull Valdimarsson | BÍKR | Unglingaflokkur |
Daði Freyr Gunnarsson | AÍH | Unglingaflokkur |
Jóhann Ingi Fylkisson | AÍH | Unglingaflokkur |
Björgólfur Bersi Kristinsson | AÍH | Unglingaflokkur |
Elmar Sveinn Einarsson | AÍH | Unglingaflokkur |
Agnar Ingi Sigurdsson | AÍH | Unglingaflokkur |
Einar Baldur Jónsson | KK | Unglingaflokkur |
Jóhann Bjarki Jónsson | KK | Unglingaflokkur |
Grétar J.Sigvaldasson | AÍFS | Unglingaflokkur |
Sara Rún Hilmarsdóttir | AÍH | Unglingaflokkur |
Kristbjörg Sunna Andradóttir | AÍH | Unglingaflokkur |
Kristinn Örn Jakobsson | TKS | Unglingaflokkur |
Sara Máney Hauksdóttir | AÍH | Unglingaflokkur |
Bergþóra Káradóttir | AÍFS | Unglingaflokkur |
Dómnefnd hefur gert eftirfarandi breytingu á sérreglum keppninnar:
Grein 14.1.1 var - "Dómnefnd skipa Aðalsteinn Símonarson, sem jafnframt er formaður hennar, og Sigurður Arnar Pálsson."
Grein 14.1.1 verður - "Dómnefnd skipa Aðalsteinn Símonarson, sem jafnframt er formaður hennar, Sigurður Arnar Pálsson og Þórður Andri McKinstry."
Dómnefndarformaður Dómnefndarmaður Dómnefndarmaður
Aðalsteinn Símonarson Sigurður Arnar Pálsson Þórður Andri McKinstry
Dagskráin hefur verið birt með smá breytingum frá fyrri keppnum, mætingu og skoðun hefur verið flýtt.
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir KFC Íslandsmót í Rallycrossi 2021 - 3. umferð.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir rallycross og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg þann 27. júní 2021.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður, eða vegna samkomutakmarkanna.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er AkstursÍþróttafélag Hafnafjarðar (AÍH)
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Linda D.Jóhannsdóttir og Ari H. Hjaltason
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagshúsnæði AÍH í Hafnarfirði.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 Brautin
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður rangsælis um brautina.
4.1.3 Brautin er 850 metra löng
4.1.4 Hver riðill er meira en 5 hringir, eða u.þ.b. 4.650 m.
4.1.4.a Þegar fyrsta ökutæki í riðli ekur í 6. skipti yfir endalínu er flaggað á það til merkis um lok riðils.
4.1.4.b Öll önnur ökutæki í riðlinum verða flögguð út í næsta sinn sem þau fara yfir endalínu.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Pitturinn nær frá stjórnstöð og framfyrir félagsheimilið
GREIN 4.3 PARC FERMÉ
4.3.1 Parc Fermé er pitturinn
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur, ökumenn mega ganga frá bílum á kerrur en ekki eiga neitt við bílana að örðu leiti.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pitt.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita eða þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja :
5.1.1.a
Unglingaflokkur
1000cc flokkur
1400cc flokkur
2000cc flokkur
4x4 non turbo flokkur
Opinn flokkur
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur fimmtudaginn 24. júní 2021 kl. 23:59
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt skráningargjald er kr. 16.000
6.6a Unglingaflokkur greiðir 8.000 með sérstökum afsláttarkóða
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS bætist svo við, ef við á.
6.8 Leyfður fjöldi aðstoðarmanna er 3 fyrir hvern skráðan keppnisbíl (getur breyst í samræmi við sóttvarnareglur )
6.8.1 Fari fjöldi skráðra keppanda samanlagt í öllum flokkum yfir 25 þarf að skoða það sérstaklega hvort hægt verði að halda keppnina vegna samkomutakmarkana.
6.8.2 Verði tilslakanir á sóttvarnarreglum vegna covid-19 fyrir keppnisdag verður fjölgað leyfðum aðstoðarmönnum með hverju liði, verður það þá auglýst sérstaklega á auglýsingatöflu keppninnar.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
7.3 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 TÍMATÖKUSENDIR
9.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur.
9.1.a Keppendur sem eiga ekki slíkan búnað geta leigt hann af keppnishaldara á 3.000kr, pr. Keppni ( á meðan birgðir endast)
9.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
9.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi tímatöku lokið hjá því ökutæki.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki sem standast skoðun á keppnisdegi fá heimild til að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímatökur Kl:10:00, ræst á ferð án fylgdarbíls.
10.2.1.a.i Í tímatökum ekur hvert ökutæki einn tímamældan hring.
10.2.1.b Ræsing í fyrsta riðil kl. 13:00, ræst úr kyrrstöðu
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu í tímatökur.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í 1. umferð ræðst af grein 3.6.2 í rallycross reglum.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í hverri umferð í þessarri röð: Unglingar, 1000cc, 1400cc, 2000cc, 4x4 og Opinn flokkur
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.4.a Verði úrslitaumferð í flokk ekin í tveimur riðlum munu B úrslit ekin á undan A úrslitum.
10.3.5 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.6 Ef fjöldi ökutækja í flokki, öðrum en unglingaflokki, er meiri en hægt er að keyra í einu í brautinni samkvæmt grein 3.8.4 Keppnisgreinareglum fyrir rallvcross, verður ökutækjum skipt upp í riðla.
10.3.6.a Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1 o.s.frv.
10.3.6.b Í úrslit komast þau sex ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum.
10.3.6.b.i Séu tvö eða fleiri jöfn í sæti skal árangur úr fyrstu umferð ráða.
10.3.6.b.ii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um uppröðun.
10.3.7 Ef fjöldi ökutækja í unglingaflokki er meiri en 8 verður þeim skipt upp í riðla.
10.3.7.a Ef fjöldi ökutækja er 9-16:
10.3.7.a.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1, o.s.frv.
10.3.7.a.ii Í A úrslit komast þau fjögur ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-8 í lokaúrslitum.
10.3.7.a.iii Í B úrslit komast þau fjögur ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 9-16 í lokaúrslitum.
10.3.7.b Ef fjöldi ökutækja er 17-24:
10.3.7.b.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 3, fjórði besti tími í riðil 1, fimmti besti tími í riðil 2, sjötti besti tími í riðil 3, sjöundi besti í riðil 1, o.s.frv.
10.3.7.b.ii Í A úrslit fara þau tvö ökutæki úr hverjum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-6 í lokaúrslitum.
10.3.7.b.iii Í B úrslit fara þau tvö ökutæki úr hverjum riðli sem lenda í 3. og 4. sæti samanlagt úr tveimur þeirra bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 7-12 í lokaúrslitum.
10.3.7.c Séu tvö eða fleiri ökutæki jöfn í sæti eftir riðlakeppni skal árangur úr fyrstu umferð ráða röð þeirra.
10.3.7.c.i Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um röð þeirra.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan. Forráðamaður skal fylgja unglingi á þennan fund.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://skraning.akis.is/keppni/293 .
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rallycross.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Aðalsteinn Símonarson, sem jafnframt er formaður hennar, og Sigurður Arnar Pálsson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnis- og brautarstjóri er Linda Dögg Jóhannsdóttir.
14.2.2 Skoðunarmenn eru: Hilmar B.Þráinsson og Ari H. Hjaltason.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Ari H. Hjaltason.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.2.6 Sóttvarnarfulltrúi er Berglind Björnsdóttir
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: AÍH
Keppnisgjald: 16000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Arnar Már Árnason | AÍH | 86 |
2 | Sindri már axelsson | AÍH | 68 |
3 | Óliver Örn Jónasson | AÍH | 62 |
4 | Arnar Freyr Árnason | AÍFS | 54 |
5 | Guðbjörn Már Ólafsson | AÍH | 34 |
6 | Guðríður Ósk Steinarsdóttir | AÍH | 31 |
7 | Heiða Karen Fylkisdóttir | AÍH | 26 |
8 | Kristján Örn Aðalbjörnsson | AÍH | 18 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Sverrir Snær Ingimarsson | AÍH | 76 |
2 | Vikar Karl Sigurjónsson | AÍH | 68 |
3 | Sigurbjörg Björgvinsdóttir | AÍH | 49 |
4 | Birgir Kristjánsson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ólafur Tryggvason | AÍH | 86 |
2 | Agnar Freyr Ingvason | AÍH | 64 |
3 | Þröstur Jarl Sveinsson | AÍH | 63 |
4 | Tryggvi Ólafsson | AÍH | 51 |
5 | Magnús Vatnar Skjaldarson | AÍH | 38 |
6 | kristinn Einarsson | AÍH | 35 |
7 | Guðmundur Jónsson | AÍH | 30 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Steinar Nòi kjartansson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Sævar Þór Snorrason | AÍFS | 74 |
2 | Arnar Elí Gunnarsson | AÍH | 66 |
3 | Andri Svavarsson | AÍFS | 63 |
4 | Hilmar Pétursson | AÍFS | 61 |
5 | Ísak Sigfússon | AÍH | 38 |
6 | Konrad Kromer | AÍH | 33 |
7 | Gísli Björn Rúnarsson | TKS | 26 |
8 | Ólafur Karl Karlsson | AÍH | 22 |
9 | Rakel Ósk Einarsdóttir | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Jóhann Ingi Fylkisson | AÍH | 83 |
2 | Daníel Jökull Valdimarsson | BÍKR | 72 |
3 | Bergþóra Káradóttir | AÍFS | 58 |
4 | Emil Þór Reynisson | AÍH | 55 |
5 | Björgólfur bersi kristinsson | AÍH | 55 |
6 | Grétar jóhannes sigvaldasson | AÍFS | 44 |
7 | Anton Orri Gränz | AÍH | 37 |
8 | Elmar Sveinn Einarsson | AÍH | 34 |
9 | Kristinn Örn Jakobsson | TKS | 33 |
10 | Agnar Ingi Sigurdsson | AÍH | 30 |
11 | Sara Rún Hilmarsdóttir | AÍH | 26 |
12 | Jóhann Bjarki Jónsson | KK | 16 |
13 | Einar Baldur Jónsson | KK | 16 |
14 | Kristbjörg Sunna Andradóttir | AÍH | 16 |
15 | Sara Máney Hauksdóttir | AÍH | 14 |
16 | Daði Freyr Gunnarsson | AÍH | 8 |