Torfæruklúbbur Suðurlands heldur Íslandsmót í Torfæru 2021 í gryfjum í Akrafjalli í Hvalfjarðarsveit þann 25.7 2021
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum. Ásamt tilþrifaverðlaun í öllum flokkum
Dagskrá
8:00 Pittur opnar
8:30 Skoðun keppnisbíla hefst í pitt
11:00 Stuttur fundur og brautarskoðun
11:15 Skoðun lýkur
12:55 Keppnisbílar mæta við ráshlið
13:00 Keppni hefst
17:00 Áætluð keppnislok kærufrestur hefst
17:30 Kærufrestur lýkur
17.35 Verðlaunaafhending hefst við pitt
TKS
Viðburðarstjóri: Kristjan Finnur Sæmundsson
Öryggisfulltrúi: Gísli Björn Rúnarsson
Skoðunarmaður: Kristján Birgisson
Formaður dómnefndar: Baldvin Hansson
Dómnefnd 1: Ari Halldor Hjaltsson
Dómnefnd 2: Heimir Snær Jónsson
25. júlí 2021 kl: 13:00
Gryfjur við Akranes
Lýsing: 6 brautir
Torfæra
Íslandsmeistaramót - 4.umferð
Skráning hefst: 12. júlí 2021 kl: 15:00
Skráningu lýkur: 22. júlí 2021 kl: 23:58
Götubílar - Street Legal
Sérútbúnir - Unlimited
Sérútbúnir götubílar - Modified
1.1 Keppnin heitir Akranes torfæran og er 4. umferð Íslandsmeistaramóts í torfæru 2021.
1.2 Keppt er í torfæru eins og hún er skilgreind í keppnisgreinarreglum AKÍS.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru og þessum sérreglum.
1.4 Keppnin fer fram í gryfjum í Akrafjalli í Hvalfjarðarsveit, þann 25. júlí 2021 kl. 13:00.
1.5 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.6 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.7 Aðeins er keppt í keppnisflokkum sem 3 skráningar eða fleiri berast fyrir.
2.1 Keppnishaldari er Torfæruklúbbur Suðurlands, til heimilis að Marbakkabraut, Kópavogi.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Kristján Finnur Sæmundsson, Jóhann Daði Pálmarsson, Sigfús Þór Sigurðsson, Elva Stefánsdóttir.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis Marbakkabraut, Kópavogi.
4.1.1 Þrautirnar liggja um lokað aksturssvæði sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.1.a Ekki er um gerðarvottað keppnissvæði að ræða.
4.1.2 Þrautir eru 6 í hverjum flokki, samtal um það bil 70 - 800 metra langar en þó getur það verið breytilegt á milli flokka og ráðist af aðstæðum.
GREIN 4.2 PARC FERMÉ
4.2.1 Parc Fermé er staðsett í pittsvæði viðgerðir eru leyfðar og öllum er frjálst að vera í kringum keppnistækið í Parc Fermé.
4.2.2 Ökutæki sem ræsir í síðustu þraut skal keyra í Parc Fermé eftir að hafa lokið akstri.
4.2.3 Sé ökutækið ekki í ökuhæfu ástandi skal það flutt í Parc Fermé af keppnishaldara.
4.2.4 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið eða staðfest úrslit séu birt.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja:
5.1.1.a Götubílar - Street Legal
5.1.1.b Sérútbúnir - Unlimited
5.1.1.c Sérútbúnir götubílar - Modified
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.1.1 Leyfilegur fjöldi aðstoðarmanna er 8 fyrir hvern skráðan keppnisbíl.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 22. júlí 2021 klukkan 23:59:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 5.000 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.
7.1 Öll ökutæki sem taka þátt í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9.1 KEPPNISNÚMER
9.1 Keppandi skal merkja ökutæki sitt sjálfur í samræmi við Torfærureglur - 2021 grein 7.1.
9,2 Keppnisnúmer skal vera vel sýnilegt, staðsett á tveimur hliðum ökutækja og skal það vera:
9.2.1.a svartir stafir á hvítum bakgrunni fyrir sérútbúna bíla;
9.2.1.b svartir stafir á gulum bakgrunni fyrir sérútbúnum götubíla;
9.2.1.c svartir stafir á appelsínugulum bakgrunni fyrir götubíla:
9.2.1.d 35 cm á hæð og 25 cm breidd á alla flokka.
9.3 Þeir bílar sem ekki hafa keppnisnúmer fá því úthlutað hjá keppnisráði í torfæru.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Ökutæki skráð til keppni fær að ræsa hafi það staðist keppnisskoðun.
10.2.1 Bílar skulu vera tilbúnir í keppni í rásröð kl 12:55.
10.2.1.a Fyrsti bíll er ræstur kl 13:00.
10.2.2 Ræst er úr kyrrstöðu.
10.3.1 Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldar og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
10.3.2 Röð ökutækja ræðst af grein 4.1 um rásröð í torfærureglum
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessari röð: Götubílar, Sérútbúnir bílar og Sérútbúnir götubílar.
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum https://nn.is/Jk7i2
11.3.1 Slóð á upplýsingatöfluna verður birt á keppendafundi.
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um torfæru.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum auk tilþrifaverðlauna.
14.1.1 Dómnefnd skipa Baldvin Hansson, sem jafnframt er formaður hennar, Ari Halldór Hjaltason og Heimir Snær Jónsson.
14.2.1 Keppnisstjóri er Kristján Finnur Sæmundsson.
14.2.2 Skoðunarmenn eru Sveinn Ingi Nilsen og Kristján Birgisson
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Gísli Björn Rúnarsson.
14.2.4 Brautarstjóri er Jóhann Daði Pálmarsson.
14.2.5 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.5.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5.b Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
13.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
13.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: TKS
Keppnisgjald: 4000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Steingrímur Bjarnason | TKS | 20 |
2 | Óskar Jónsson | AÍNH | 17 |
3 | Haukur Birgisson | STIMPILL | 15 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Skúli Kristjánsson | AÍNH | 20 |
2 | Atli Jamil Ásgeirsson | AÍH | 17 |
3 | Geir Evert Grìmsson | TKS | 15 |
4 | Þórður Atli Guðnýjarson | AÍNH | 12 |
5 | Haukur Viðar Einarsson | KK | 10 |
6 |
Fjölnir Guðmannsson
Aðst: Kristján Skjóldal |
BA BA |
8 |
7 | Sigurður Ingi Sigurðsson | AÍNH | 6 |
8 | Guðmundur Elíasson | AÍH | 4 |
9 |
Hafsteinn Kristinsson
Aðst: Páll Jónsson |
AÍNH AÍNH |
2 |
10 | Snorri Þór Árnason | TKS | 1 |
11 | Jóhann Gunnlaugsson | KK | 0 |
12 |
Svanur Örn Tómasson
Aðst: Hreiðar örn Svansson |
BA BA |
0 |
13 | Aron Ingi Svansson | BA | 0 |