Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar heldur 3. umferð Íslandsmóts í 1.000 kappakstri 2021 á braut AÍH við Krýsuvíkurveg þann 8. ágúst 2021.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Bílar - FORMULA 1000 kappakstursbílar
Bílar - Standard 1000 kappakstursbílar
Bílar - Hot wheels TURBO
Ræst er í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
09:00 Pittur opnar / mæting keppenda
09:15 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:30 Keppendafundur
11:00 Tímataka
12:30 Fyrri keppnislota
14:00 Seinni keppnislota
15:00 Lokaúrslit birt
AÍH
Viðburðarstjóri: Linda Dögg Jóhannsdóttir
Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson
Skoðunarmaður: Ari Halldor Hjaltsson
Formaður dómnefndar: Atli Jóhann Einarsson
Dómnefnd 1: Birgir Kristjánsson
Dómnefnd 2: Stefán Sigurðsson
8. ágúst 2021 kl: 10:00
Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir:
Hringakstursæfingar
Drift,
Gokart,
Drift,
Mótorhjól,
980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir:
Rallycross,
1000m Motocrossbraut,
Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
Kappakstur
Íslandsmeistaramót - 3.umferð
Skráning hefst: 31. júlí 2021 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 6. ágúst 2021 kl: 23:59
Formula 1000 kappakstursbílar
Hot wheels TURBO
Standard 1000 kappakstursbílar
SÉRREGLUR 3.umferð 1000 kappakstur í mótröð Íslandsmeistaramót - 3.umferð
1.1 Keppnin heitir 3.umferð 1000 kappakstur.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir kappakstur og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH
850m Malbikuð braut sem er notuð undir: Hringakstursæfingar Drift, Gokart, Drift, Mótorhjól, 980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir: Rallycross, 1000m Motocrossbraut, Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
, þann 8. ágúst 2021 kl: 10:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar, til heimilis að Krýsuvíkurvegi.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Linda Dögg Jóhannsdóttir og Ari H.Hjaltason
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis að Krýsuvíkurvegi
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður rangsælis um brautina
4.1.3 Brautin er 980 m löng
4.3.1 Parc Fermé er staðsett á pittsvæði.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára úrslitaferð er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita úr síðustu keppnislotu og þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki keppnisbrautarinnar:
5.1.1.a Formula 1000 kappakstursbílar
Standard 1000 kappakstursbílar
.
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þessa flokks eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Enginn hámarksfjöldi er settur á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 2021-08-06 23:59:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 9000 og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á;
7.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.a Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara.
9.1 Keppnisnúmer skal vera staðsett á öllum fjórum hliðum ökutækis og skal það vera:
9.1.a í Pantone 803 C lit, eða því sem næst;
9.1.b í Arial Narrow Bold letri, eða því sem næst, með hefðbundnu hlutfalli hæðar og víddar hvers tölustafs;
9.1.c í framrúðu, farþegamegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð;
9.1.d í hliðarrúðum að aftan, hægra- og vinstra megin, lágmark 20 cm að hæð;
9.1.e í afturrúðu, bílstjóramegin að ofanverðu, lágmark 15 cm að hæð.
9.2 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.3 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS, Reglubókar FIA og reglur og lög landsins.
9.4 Keppnishaldara er heimilt að setja auglýsingu undir hliðarrúðu á báðum framhurðum ökutækis sem er allt að 12 cm há og jafn breið og hurðin.
9.5 Heimilt er að setja auglýsingaborða efst á framrúðu hann má þó ekki vera hærri en svo að ökumaður haldi óskertu og öruggu útsýni til aksturs.
10.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur.
10.1.a hægt er að leigja búnað á 3000 kr af AÍH
10.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
10.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi frjálsri æfingu, tímatökuæfingu eða keppnislotu lokið hjá því ökutæki.
11.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni pg fá keppnisheimild frá skoðunarmanni fá að ræsa.
11.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
11.2.1.a
09:00 Pittur opnar / mæting keppenda
09:15 Skoðun hefst
10:00 Pittur lokar
10:30 Skoðun lýkur
10:30 Keppendafundur
11:00 Tímataka
12:30 Fyrri keppnislota
14:00 Seinni keppnislota
15:00 Lokaúrslit birt
11.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja við ræsingu á frjálsri æfingu og tímatökuæfingu.
11.3.2 Röð ökutækja við ræsingu fyrri kappaksturs ræðst af tímum á tímatökuæfingu, hraðasta ökutæki ræsir fremst, næst hraðasta næst fremst og svo koll af kolli.
11.3.3 Röð ökutækja við ræsingu seinni kappaksturs er öfug röð úrslita fyrri kappaksturs fyrir sæti 1-10 og óbreytt röð fyrir sæti 11 og upp úr.
11.3.4 Í fyrri og síðari kappakstri er ökutækjum raðað í tvær raðir á miðri braut, vinstri röð við ráslínu og hægri röð um það bil bíllengd aftar. Á milli raðana skulu vera lágmark tvær bílbreiddir.
11.3.5 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
12.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
12.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
12.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
12.3 Upplýsingatafla keppninnar verður birt á gámnum undir stjórnstöð - Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
12.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
12.4.a Kærugjald og annar kostnaður því tengt ræðst af gjaldskrá AKÍS sem er aðgengileg á vef AKÍS.
12.4.b Kærugjald skal greitt til dómnefndar sem veitir því viðtöku fyrir hönd AKÍS.
12.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
12.5.a Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
12.5.b Reglur AKÍS um dróna.
13.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um kappakstur.
13.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
13.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.
13.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
14.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
15.1.1 Dómnefnd skipa Atli Jóhann Einarsson, sem jafnframt er formaður hennar, Birgir Kristjánsson og Stefán Sigurðsson.
15.2.1 Keppnisstjóri er Linda Dögg Jóhannsdóttir.
15.2.2 Skoðunarmaður er Ari Halldor Hjaltsson.
15.2.3 Öryggisfulltrúi er Ari Halldor Hjaltsson.
15.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
15.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
15.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
15.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
15.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
15.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
15.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
15.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
15.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
15.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: AÍH
Keppnisgjald: 9000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Stefán Sölvason | KK | 46 |
2 | Jóhann Egilsson | KK | 43 |
3 | Gunnlaugur Jónasson | KK | 30 |
4 |
Grétar G. Hagalín
Aðst: Birgir Sigurðsson |
KK KK |
24 |
5 | Ingi Þór Aðalsteinsson | KK | 20 |
6 | Tomas H. Jóhannesson | KK | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Guðni Þorbjörnsson | KK | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Agnar Ingi Sigurdsson | AÍH | 44 |
2 | Emil Þór Reynisson | AÍH | 42 |
3 | Titas Kauneckas | AÍH | 33 |
4 | Almar Viktor Þórólfsson | AÍFS | 24 |
5 | Sara Rún Hilmarsdóttir | AÍH | 18 |
6 | Jóhann Ingi Fylkisson | AÍH | 10 |