5.umferð Íslandsmótsins í Rallycross - 15.ágúst 2021
Skráningu lýkur 12.ágúst klukkan 23:59
!!!!!!ATHUGIÐ !!!!!!!!
Settar hafa verið inn nýjar sérreglur sem ég bið keppendur um að skoða vel.
** Minni á að keppendur kynni sér vel reglur um öryggisbúnað**
GREIN 5.1 PERSÓNULEGUR BÚNAÐUR ÖKUMANNS 5.1.1
Ökumaður skal hafa eftirfarandi búnað:
5.1.1.a Hjálm, opinn eða lokaðan, samkvæmt stöðlum AKÍS/FIA (FIA tæknilisti N°25).
5.1.1.b HANS búnað með viðurkenningu frá FIA (FIA 8858) eða SFI (SFI 3.3).
5.1.1.c Keppnisgalla sem er lágmark tveggja laga eldheldur heilgalli með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000), SFI (SFI 3.2A/5 eða hærra).
5.1.1.d Keppnishanska með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000) eða SFI (SFI 3.3/ 5 eða hærra).
5.1.1.e Keppnisskó með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000) eða SFI (SFI 3.3/ 5 eða hærra).
5.1.1.f Lambhúshettu með viðurkenningu frá FIA (FIA 8856-2000) eða SFI (SFI 3.3/ 5 eða hærra).
5.1.2 Myndavélar eða annar aukabúnaður festur á hjálm eða ökumann á annan hátt er bannaður.
Fyrir frekari upplýsingar skal hafa samband við Lindu D.Jóhannsdóttir S:696 2520 eða varsla@simnet.is
Við skráningu í unglingaflokk þarf að setja í afsláttarkóða: unglingar
Athugið að eingöngu keppendur í unglingaflokk geta nýtt sér þennan kóða
ATH
Skráningu lýkur 12. ágúst klukkan 23:59
Dagskrá: |
Mæting er kl 7:30 - 8:00 - ATH gefin er refsing eftir kl 8:00 |
pittur lokar kl 8:00 |
Skoðun byrjar kl 8:00 |
Tímatökur hefjast kl 10:00 |
Fundur með starfsfólki 11:30 |
Fundur með keppendum kl 12:15 |
Keppni hefst kl 13:00 |
Hlé í 10-15 min fyrir úrslitariðil |
Úrslitariðlar keyrðir |
Áætluð Úrslit ca. kl 19:00 |
Áætluð Kærufrestur liðinn ca kl 19:30 |
Áætluð Formleg tilkynning úrslita og verðlaunaafhending ca kl 19:30 |
AÍH
Viðburðarstjóri: Linda Dögg Jóhannsdóttir
Öryggisfulltrúi: Ari Halldor Hjaltsson
Skoðunarmaður: Hilmar B Þràinsson
Formaður dómnefndar: Þórður Guðni Ingvason
Dómnefnd 1: Gunnar Bjarnason
Dómnefnd 2: Sigurður Arnar Pálsson
15. ágúst 2021 kl: 13:00
Akstursíþróttasvæði AÍH
Lýsing: 850m Malbikuð braut sem er notuð undir:
Hringakstursæfingar
Drift,
Gokart,
Drift,
Mótorhjól,
980m Malbiks og malarbraut sem er notuð undir:
Rallycross,
1000m Motocrossbraut,
Allar nánari upplýsingar um æfingar og opnunartíma brautarinnar eru inni á heimasíðu Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar www.aihsport.is
Rallycross
Íslandsmeistaramót - 5.umferð
Skráning hefst: 1. ágúst 2021 kl: 18:00
Skráningu lýkur: 12. ágúst 2021 kl: 23:59
1400 flokkur
2000 flokkur
4x4 Non Turbo
Opinn flokkur
Standard 1000cc flokkur
Unglingaflokkur
Hér er ráslistinn
Hala niður viðhengiGREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir 5.umferð Íslandsmótsins í Rallycrossi 2021 .
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir rallycross og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg þann 15.ágúst 2021.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður, eða vegna samkomutakmarkanna vegna Covid 19.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er AkstursÍþróttafélag Hafnafjarðar (AÍH)
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Linda D.Jóhannsdóttir og Ari H. Hjaltason
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagshúsnæði AÍH í Hafnarfirði.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 Brautin
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokki sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður rangsælis um brautina.
4.1.3 Brautin er 850 metra löng
4.1.4 Hver riðill er meira en 5 hringir, eða u.þ.b. 4.650 m.
4.1.4.a Þegar fyrsta ökutæki í riðli ekur í 6. skipti yfir endalínu er flaggað á það til merkis um lok riðils.
4.1.4.b Öll önnur ökutæki í riðlinum verða flögguð út í næsta sinn sem þau fara yfir endalínu.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Pitturinn nær frá stjórnstöð og framfyrir félagsheimilið
GREIN 4.3 PARC FERMÉ
4.3.1 Parc Fermé er pitturinn
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur, ökumenn mega ganga frá bílum á kerrur en ekki eiga neitt við bílana að öðru leiti.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára sínar ferðir er heimilt að aka beint í pitt.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita eða þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið. – Brjóti keppandi Parc Fermé reglur getur hann fengið refsingu
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja :
5.1.1.a
Unglingaflokkur
1000cc flokkur
1400cc flokkur
2000cc flokkur
4x4 non turbo flokkur
Opinn flokkur
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur fimmtudaginn 12.ágúst 2021 23:59
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt skráningargjald er kr. 16.000
6.6a Unglingaflokkur greiðir 8.000 með sérstökum afsláttarkóða
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS bætist svo við, ef við á.
6.8 Leyfður fjöldi aðstoðarmanna er 3 fyrir hvern skráðan keppnisbíl (getur breyst í samræmi við sóttvarnareglur )
6.8.1 Fari fjöldi skráðra keppanda samanlagt í öllum flokkum yfir 25 þarf að skoða það sérstaklega hvort hægt verði að halda keppnina vegna samkomutakmarkana.
6.8.2 Verði tilslakanir á sóttvarnarreglum vegna covid-19 fyrir keppnisdag verður fjölgað leyfðum aðstoðarmönnum með hverju liði, verður það þá auglýst sérstaklega á auglýsingatöflu keppninnar.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
7.3 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 TÍMATÖKUSENDIR
9.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur.
9.1.a Keppendur sem eiga ekki slíkan búnað geta leigt hann af keppnishaldara á 3.000kr, pr. Keppni ( á meðan birgðir endast)
9.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
9.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi tímatöku lokið hjá því ökutæki.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki sem standast skoðun á keppnisdegi fá heimild til að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímatökur Kl:10:00 Ræst á ferð án fylgdarbíls.
10.2.1.a.i Í tímatökum ekur hvert ökutæki einn tímamældan hring
10.2.1.b Ræsing í fyrsta riðil 13:00 Ræst úr kyrrstöðu
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu í tímatökur.
10.3.2 Röð ökutækja við ræsingu í 1.heat ræðst af grein 3.6.2 í rallycross reglum.
10.3.2.a Flokkar eru keyrðir til enda í þessarri röð: Unglingar, 1000cc, 1400cc,2000cc,4x4 og opinn flokkur
10.3.3 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.4.a Verði úrslitaumferð í flokk ekin í tveimur riðlum munu B úrslit ekin á undan A úrslitum.
10.3.5 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.3.6 Ef fjöldi ökutækja í flokki, öðrum en unglingaflokki, er meiri en hægt er að keyra í einu í brautinni samkvæmt grein 3.8.4 Keppnisgreinareglum fyrir rallvcross, verður ökutækjum skipt upp í riðla.
10.3.6.a Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1 o.s.frv.
10.3.6.b Í úrslit komast þau sex ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum.
10.3.6.b.i Séu tvö eða fleiri jöfn í sæti skal árangur úr fyrstu umferð ráða.
10.3.6.b.ii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um uppröðun.
10.3.7 Ef fjöldi ökutækja í unglingaflokki er meiri en 8 verður þeim skipt upp í riðla.
10.3.7.a Ef fjöldi ökutækja er 9-16:
10.3.7.a.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 1, fjórði besti tími í riðil 2, fimmti besti tími í riðil 1, o.s.frv.
10.3.7.a.ii Í A úrslit komast þau fjögur ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-8 í lokaúrslitum.
10.3.7.a.iii Í B úrslit komast þau fjögur ökutæki úr hvorum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 9-16 í lokaúrslitum.
10.3.7.b Ef fjöldi ökutækja er 17-24:
10.3.7.b.i Besti tími í tímatökum fer í riðil 1 í umferðum 1-3, næst besti tími í riðil 2, þriðji besti tími í riðil 3, fjórði besti tími í riðil 1, fimmti besti tími í riðil 2, sjötti besti tími í riðil 3, sjöundi besti í riðil 1, o.s.frv.
10.3.7.b.ii Í A úrslit fara þau tvö ökutæki úr hverjum riðli sem bestu samanlögð sæti hafa úr tveimur af sínum bestu umferðum. Niðurstaða A úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 1-6 í lokaúrslitum.
10.3.7.b.iii Í B úrslit fara þau tvö ökutæki úr hverjum riðli sem lenda í 3. og 4. sæti samanlagt úr tveimur þeirra bestu umferðum. Niðurstaða B úrslita sker úr um röð ökutækja í sæti 7-12 í lokaúrslitum.
10.3.7.c.? Séu tvö eða fleiri ökutæki jöfn í sæti eftir riðlakeppni skal árangur úr fyrstu umferð ráða röð þeirra.
10.3.6.b.ii Hafi tvö eða fleiri ökutæki einnig verið jöfn í fyrstu umferð skal betri tími í tímatöku skera úr um röð þeirra.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan. Forráðamaður skal fylgja unglingi á þennan fund.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 2.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar verður staðsett á gámnum undir stjórnstöð .
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um rallycross.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og stigavörður hefur tekið þau saman og afhent dómnefnd.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Þórður Guðni Ingvason, sem jafnframt er formaður hennar, Gunnar Bjarnason og Sigurður Arnar Pálsson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnis- og brautarstjóri er Linda Dögg Jóhannsdóttir.
14.2.2 Skoðunarmenn eru: Hilmar B.Þráinsson og Ari H.Hjaltason.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Ari H.Hjaltason.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.2.6 Sóttvarnarfulltrúi er Berglind Björnsdóttir
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
GREIN 14.5 STAÐREYNDADÓMARAR
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Grein 15.0 Refsingar og fleira
|
Brot |
Ákvörðunarvald |
Refsing
|
0.2.1. |
Skráning á bifreið sem stenst ekki reglur |
Dómari |
Fær ekki rásleyfi |
0.2.2. |
Ekki með gilt keppnisskírteini |
Dómari |
Fær ekki rásleyfi |
0.2.3. |
Ekki með leyfi frá ASN/AKÍS |
Dómari |
Fær ekki rásleyfi |
0.2.4 |
Ekki búin að greiða keppnisgjald |
Dómari |
Fær ekki rásleyfi |
0.2.5. |
Bifreið stenst ekki öryggiskröfur |
Dómari |
Fær ekki rásleyfi |
0.2.6. |
Kemur of seint á ráslínu, ef það veldur seinkun á keppni. |
Brautarstjóri |
Í úrslitum. Dæmdur frá riðli,Fær ekki að taka þátt í riðli. Í undanriðlum. Fær ekki að taka þátt í riðlinum og næsti bill færður upp |
0.2.7. |
Ekið útfyrir braut með öll 4 hjól, sem veldur styttri vegalengd, betri tíma, og/eða betri staðsetningu miðað við aðra keppendur. |
Brautarstjóri |
Fyrsta brot i undanriðlum: 5 sec tímarefsing og/eða aðvörun
Endurtekin brot:Dæmdur frá riðli. |
0.2.8. |
Þjófstart
|
Brautarstjóri |
Art.6.21 færður aftastur á ráslínu fyrir aftan aftasta bíl |
0.2.8.a |
Ef sami ökumaður þjófstartar aftur í riðli |
Brautarstjóri |
Dæmdur frá riðli, á við úrslitariðil og er skráður í síðasta sæti en fyrir framan þá sem starta ekki. Fær stig eftir því sæti. |
0.2.9. |
Ekki farið eftir leiðbeiningum flaggara Ekki farið eftir flaggreglum Art H. Ekið óvarlega á gulu flaggi/framúrakstur |
Brautarstjóri |
Dæmdur frá riðli og engin stig fyrir riðil |
0.2.10. |
Útbúnaður ökumanns ekki eftir öryggisreglum |
Dómari |
Dæmdur frá riðli. |
0.2.11. |
Brot á Parc Ferme reglum |
Dómari |
Fyrsta brot: Aðvörun, Ítrekuð brot: Dæmdur frá úrslita riðli. |
0.2.12 |
Viljandi eða óvarleg snerting milli ökumanna/bíla eftir rásmark |
Brautarstjóri |
Dæmdur frá riðli (á við alla riðla) |
0.2.13. |
Mætt of seint í öryggisskoðun |
Brautarstjóri |
Aðvörun Önnur sekt möguleg með ákvörðun dómara. |
0.2.14. |
Óviðkomandi fólk á startlínu |
Brautarstjóri |
Vísað af svæði |
0.2.15. |
Hraðakstur á þjónustusvæði |
Brautarstjóri |
Fjársekt. 10.000.kr. Önnur sekt möguleg með ákvörðun brautarstjóra |
0.2.16. |
Ekki mætt á fund keppenda |
Brautarstjóri |
Aðvörun. |
0.2.17. |
Ekki mætt á verðlaunaafhendingu, Ekki mætt á verðlaunaafhendingu í keppnisgalla. |
Dómarar |
Á ekki við |
0.2.18. |
Ökumaður undir áhrifum áfengis og/eða annara ólöglegra lyfja |
Dómarar |
Dæmdur frá keppni. |
0.2.19. |
|
|
|
0.2.20. |
Ekki farið eftir hraðatakmörkun á áhorfenda/bílastæðum/keppnissvæði. |
Brautarstjóri |
Sjá: 0.2.15. |
0.2.21. |
Krossar línu í starti |
Dómarar |
Raut flagg og endurræsing, færður aftastur á ráslínu fyrir aftan aftasta bíl |
0.2.22. |
Komið eftir mætingafrest/tímamörk inná keppnissvæði. |
Brautarstj/Dóm |
Fær ekki að taka þátt í tímatökum, fær max tíma. |
0.2.23. |
Bíll ekki með rásnúmer. |
Brautarstjóri |
Aðvörun.
Ef ekki er búið að setja rásnúmer samkvæmt keppnisreglum í næstu keppni á eftir; fær ekki rásheimild |
0.2.24. |
|
|
|
|
|
|
Í úrslitariðli ef það er endurræst og keppandi fellur úr keppni og getur ekki mætt er stæðið hans autt í endurræsingu. |
|
|
|
|
|
|
|
|
Mótmæli og kærur eru teknar fyrir samkvæmt reglum Akís og sérreglum keppninar.
Aðeins keppandi (ef keppandi skráði sig sjálfur í keppni)eða samkeppnisaðili getur sent inn kærur og áfrýjun.
Allar kærur verða vera afhentar á réttu formi samkv. Reglum Akís (Kærur skulu gerðar samkvæmt ISC. Undirritaðar kærur ásamt kærugjaldi skulu afhentar keppnisstjóra eða staðgengli hans innan tilsetts kærufrests. Kærugjald er samkvæmt gjaldskrá Akís, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar.) hún verður að vera undirrituð af keppanda og verður að innihalda hvaða reglu/brot er verið að kæra.
Hægt er að skjóta málum til almennrar dómnefndar AKÍS til samræmis við reglur um hennar
Allar kærur verða vera lagðar fram með kærugjaldi sem er__50.000 kr_.
Ef kæru upphæð fylgir ekki með, er kæra ekki tekin gild.
Kæra sem felur í sér rif á bíl er aukagjald :__40.000 kr_.
Kostnaður sem verður vegna rif á bíl eru borguð af:
Þeim sem leggja fram kæru, ef hún á ekki við rök að styðjast
Keppanda, ef kæra á við rök að styðjast
Tímamörk til að leggja fram kærur:
Kærufrestur er 30 mínútur eftir að úrslit eru birt, nema annað sé tekið fram í sérreglum keppninnar
Mótmæli um að ökutæki standist ekki reglur í flokk verða vera komin fram ekki seinna en 15mín eftir að riðli lauk (úrslit úr riðli).
Mótmæli um gang keppninnar eða úrslit, verða vera komin fram innan við 30mín eftir útgefin úrslit.
Mótmæli um ákvörðun brautarstjóra verða vera komin fram innan við 30mín eftir að ákvörðunin var auglýst á uppl.töflu.
Mótmæli geta verið tekin fyrir eftir tímamörk, einungis ef Dómnefnd telur að ástæðan á töfini sé hlutlæg og sanngjörn
Tímasektir og ekki gefið rásleyfi útaf komið of seint á ráslínu er ekki hægt að áfrýja
Áfryjanir: eru samkv reglum Akís og sérreglum keppninnar
Skipuleggjandi: AÍH
Keppnisgjald: 16000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Arnar Már Árnason | AÍH | 88 |
2 | Arnar Freyr Árnason | AÍFS | 74 |
3 | Valgeir Hugi Halldórsson | BA | 61 |
4 | Heiða Karen Fylkisdóttir | AÍH | 48 |
5 |
Eiríkur Júlíus Einarssom
Aðst: Guðbjörn Már Ólafsson |
AÍH AÍH |
30 |
6 | Óliver Örn Jónasson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Birgir Kristjánsson | AÍH | 77 |
2 | Vikar Karl Sigurjónsson | AÍH | 75 |
3 | Alexander Már Steinarsson | AÍH | 56 |
4 | Sigurbjörg Björgvinsdóttir | AÍH | 39 |
5 | Robert Andrzej Knasiak | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ólafur Tryggvason | AÍH | 88 |
2 | Agnar Freyr Ingvason | AÍH | 63 |
3 | Birgir guðbjörnsson | AÍH | 52 |
4 | Tryggvi Ólafsson | AÍH | 49 |
5 | Kristófer Fannar Axelsson | AÍH | 37 |
6 | kristinn Einarsson | AÍH | 36 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Steinar Nòi kjartansson | AÍH | 80 |
2 | Erlendur Örn Ingvason | AÍFS | 65 |
3 | Jóhannes Reginn karlsson | AÍH | 65 |
4 | Gedas Karpavicius | BÍKR | 59 |
5 | Adam Kromer | AÍH | 42 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Arnar Elí Gunnarsson | AÍH | 83 |
2 | Andri Svavarsson | AÍFS | 68 |
3 | Hilmar Pétursson | AÍFS | 66 |
4 | Konrad Kromer | AÍH | 54 |
5 | Gísli Björn Rúnarsson | TKS | 38 |
6 | Rakel Ósk Einarsdóttir | AÍH | 34 |
7 | Robert Andrzej Knasiak | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Jóhann Ingi Fylkisson | AÍH | 87 |
2 | Emil Þór Reynisson | AÍH | 79 |
3 | Agnar Ingi Sigurdsson | AÍH | 72 |
4 | Daníel Jökull Valdimarsson | BÍKR | 63 |
5 | Daði Freyr Gunnarsson | AÍH | 45 |
6 | Sara Rún Hilmarsdóttir | AÍH | 45 |
7 | Grétar jóhannes sigvaldasson | AÍFS | 38 |
8 | Anton Orri Gränz | AÍH | 37 |
9 | Björgólfur bersi kristinsson | AÍH | 34 |
10 | Elmar Sveinn Einarsson | AÍH | 33 |
11 | Kristbjörg Sunna Andradóttir | AÍH | 20 |
12 | Bergþóra Káradóttir | AÍFS | 20 |
13 |
Titas Kauneckas
Aðst: Zilvinas Kauneckas |
AÍH AÍH |
18 |
14 | Ólafía Kristín Helgadóttir | AÍH | 16 |