Kvartmíluklúbburinn heldur 6. umferð Íslandsmóts í rallycrossi 2021 á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 29. ágúst 2021.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Standard 1000 flokkur
1400 flokkur
2000 flokkur
4WD non turbo
Opinn flokkur
Unglingaflokkur
Ræst er í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
08:00 Pittur opnar / mæting keppenda
08:15 Skoðun hefst
09:00 Pittur lokar
10:00 Skoðun lýkur
10:00 Keppendafundur
10:30 Tímataka
12:30 Keppnislotur
18:00 Lokaúrslit birt
KK
Viðburðarstjóri: Baldvin Hansson
Öryggisfulltrúi: Ingólfur Arnarson
Skoðunarmaður: Kjartan Viðarsson
Formaður dómnefndar: Aðalsteinn Símonarson
Dómnefnd 1: Tryggvi Magnús Þórðarson
Dómnefnd 2: Sigurjón Andersen
29. ágúst 2021 kl: 10:30
Rallycrossbraut KK
Lýsing:
Brautin er um 1.080 metra löng
Rallycross
Íslandsmeistaramót - 6. umferð
Skráning hefst: 10. ágúst 2021 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 25. ágúst 2021 kl: 23:00
1400 flokkur
2000 flokkur
4x4 Non Turbo
Opinn flokkur
Standard 1000cc flokkur
Unglingaflokkur
Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum á slóðinni https://nn.is/Ms76L
Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
1.1 Keppnin heitir 6. umferð Íslandsmóts í rallycrossi 2021.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir rallycross og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Rallycrossbraut Kvartmíluklúbbsins þann 29. ágúst 2021.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema til komi Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 10 skráningar.
2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn, til heimilis að Álfhellu, Hafnarfirði.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Baldvin Hansson, Ingimundur Helgason og Ingólfur Arnarson.
3.2 Framkvæmdanefnd er til heimilis í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins við Álfhellu.
4.1.1 Brautin er byggð til samræmis við greinarreglur og hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Ekið verður réttsælis um brautina.
4.1.3 Brautin er um það bil 1080 metra löng.
4.2.1 Pittstjóri stýrir niðurröðun og öðru sem þurfa þykir á pittsvæði.
4.3.1 Parc Fermé er staðsett við pittsvæði, afmarkað með rauðum keilum.
4.3.2 Ökutæki sem tekur þátt í úrslitum skal ekið af ökumanni þess beint í Parc Fermé þegar síðustu ferð lýkur.
4.3.2.a Ökutæki sem lýkur keppni án þess að klára úrslitaferð er heimilt að aka beint í pittstúku.
4.3.3 Ökutæki skulu vera í Parc Fermé í að minnsta kosti 30 mínútur eftir birtingu bráðabirgðaúrslita eða þar til dómnefnd ákveður að þau megi yfirgefa svæðið.
4.3.4 Viðgerðir og eldsneytisáfylling eru ekki heimilar í Parc Fermé.
5.1.1 Keppt verður í þeim flokkum ökutækja sem í boði eru samkvæmt keppnisgreinareglum berist að minnsta kosti 3 skráningar í viðkomandi flokk.
5.1.1.a Keppnisstjóra er heimilt að keyra marga flokka samtímis.
5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Enginn hámarksfjöldi er settur á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Skráningu lýkur þann 25. ágúst 2021 kl. 23:00
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 16.000 (unglingaflokkur greiðir 8000) og felur það í sér:
6.6.a þátttökurétt í keppninni;
6.6.b keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll skráningarskyld ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Óskráð ökutæki eru ábyrgðartryggð á vegum keppnishaldara.
7.3 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.a Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
9.1 Öll ökutæki skulu bera virkan MyLaps tímatökusendi fyrir bíla á meðan á keppni stendur.
9.1.a Keppendur sem eiga ekki slíkan búnað geta leigt hann af keppnishaldara á 3.000 kr. fyrir þessa keppni.
9.2 Það er á ábyrgð keppanda að koma tímatökusendinum fyrir á ökutæki sínu og tryggja að hann virki og falli ekki af því á meðan á keppni stendur.
9.3 Falli tímatökusendir af ökutæki eða hætti hann að virka er yfirstandandi tímatöku eða keppnislotu lokið hjá því ökutæki.
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa standist þau keppnisskoðun.
10.1.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímatökur kl:10:30 - Ræst á ferð án fylgdarbíls.
10.2.1.b Ræsing í fyrsta riðil 12:30 - Ræst úr kyrrstöðu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma sem auglýstur er í dagskrá og sitja hann allan.
11.1.a Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Keppendur og ökumenn skulu þekkja og virða reglur um merkjagjöf í viðauka H við Reglubók FIA, grein 11.5.
11.3 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn á vefnum á slóðinni https://nn.is/Ms76L
11.3.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til allra sem mál varða þar til keppni lýkur.
11.4 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4.a Kærugjald og annar kostnaður því tengt ræðst af gjaldskrá AKÍS sem er aðgengileg á vef AKÍS.
11.4.b Kærugjald skal greitt til dómnefndar sem veitir því viðtöku fyrir hönd AKÍS.
11.5 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.5.a Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.5.b Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir rallycross.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímatökulið hefur tekið þau saman og búið til birtingar.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum í hverjum flokki.
14.1.1 Dómnefnd skipa Aðalsteinn Símonarson, sem jafnframt er formaður hennar, Tryggvi Magnús Þórðarson og Sigurjón Andersen.
14.2.1 Keppnisstjóri er Baldvin Hansson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Kjartan Viðarsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Ingólfur Arnarson.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgegni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.
14.5.1 Nöfn og staða staðreyndadómara verða birt á upplýsingatöflu keppninnar.
Skipuleggjandi: KK
Keppnisgjald: 16000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Óliver Örn Jónasson | AÍH | 77 |
2 | Arnar Freyr Árnason | AÍFS | 72 |
3 | Arnar Már Árnason | AÍH | 60 |
4 | Þorvaldur Smári McKinstry | AÍH | 50 |
5 | Guðbjörn Már Ólafsson | AÍH | 32 |
6 | Guðríður Ósk Steinarsdóttir | AÍH | 8 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Guðmundur Örn Þorsteinsson | AÍH | 73 |
2 | Sigurbjörg Björgvinsdóttir | AÍH | 55 |
3 | Vikar Karl Sigurjónsson | AÍH | 54 |
4 |
Birgir Kristjánsson
Aðst: Stefán Sigurðsson |
AÍH AÍH |
40 |
5 | Alexander Már Steinarsson | AÍH | 23 |
6 | Sverrir Snær Ingimarsson | AÍH | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Birgir guðbjörnsson | AÍH | 80 |
2 | Ólafur Tryggvason | AÍH | 58 |
3 | Tryggvi Ólafsson | AÍH | 56 |
4 | Þröstur Jarl Sveinsson | AÍH | 55 |
5 | Agnar Freyr Ingvason | AÍH | 52 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Steinar Nòi kjartansson | AÍH | 78 |
2 | Gedas Karpavicius | BÍKR | 66 |
3 | Jóhannes Reginn karlsson | AÍH | 64 |
4 | Erlendur Örn Ingvason | AÍFS | 12 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Arnar Elí Gunnarsson | AÍH | 85 |
2 | Hilmar Pétursson | AÍFS | 74 |
3 | Andri Svavarsson | AÍFS | 55 |
4 | Sævar Þór Snorrason | AÍFS | 52 |
5 | Guðni Svavar Guðnason | AÍH | 45 |
6 | Rakel Ósk Einarsdóttir | AÍH | 30 |
7 | Konrad Kromer | AÍH | 20 |
8 | Gísli Björn Rúnarsson | TKS | 10 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Emil Þór Reynisson | AÍH | 86 |
2 | Jóhann Ingi Fylkisson | AÍH | 77 |
3 | Daníel Jökull Valdimarsson | BÍKR | 67 |
4 | Sara Rún Hilmarsdóttir | AÍH | 51 |
5 | Titas Kauneckas | AÍH | 50 |
6 | Anton Orri Gränz | AÍH | 43 |
7 | Grétar jóhannes sigvaldasson | AÍFS | 42 |
8 | Björgólfur bersi kristinsson | AÍH | 39 |
9 | Daði Freyr Gunnarsson | AÍH | 28 |
10 | Kristinn Örn Jakobsson | TKS | 28 |
11 | Elmar Sveinn Einarsson | AÍH | 28 |
12 | Bergþóra Káradóttir | AÍFS | 24 |
13 | Sara Máney Hauksdóttir | AÍH | 16 |
14 | Kristbjörg Sunna Andradóttir | AÍH | 8 |