3. Umferð Íslandsmótsins í Götuspyrnu 2021 verður haldin á Aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar þann 21.Ágúst næstkomandi.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Götuspyrna
- Bílar 4cyl
- Bílar 6cyl
- Bílar 8cyl standard
- Bílar 8cyl+
- Bílar 4x4
- Jeppaflokkur
- Mótorhjól F-hjól
- Mótorhjól Hippar undir 1100cc
- Mótorhjól Hippar 1100cc+
- Mótorhjól Krossarar
- Mótorhjól Götuhjól undir 800cc
- Mótorhjól Götuhjól 800cc+
- Mótorhjól Breytt götuhjól
Áttungsmíla
- Bílar HS Heavy Street
- Bílar DS Door Slammer
- Bílar OF Opinn flokkur - kennitími er ekki notaður í OF flokki (6.1.8.8) heldur er startað á jöfnu.
- Mótorhjól Opinn flokkur
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
10:00 Móttaka keppenda hefst
10:00 Skoðun hefst
11:00 Pittur lokar
11:00 Skoðun lýkur
11:15 Keppendafundur með keppnisstjóra
11:30 Tímatökur hefjast
12:30 Tímatökum lýkur
13:00 Keppni hefst
17:00 Áætluð keppnislok og kærufrestur hefst
Kærufresti lýkur 30 mín eftir keppnislok.
Verðlauna afhending á við stjórnstöð. Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki.
BA
Viðburðarstjóri: Valdimar G Valdimarsson
Öryggisfulltrúi: Jón Rúnar Rafnsson
Skoðunarmaður: Helgi Garðarsson
Formaður dómnefndar: Einar Gunnlaugsson
Dómnefnd 1: Jónas Freyr Sigurbjörnsson
Dómnefnd 2: Hrefna Björg Waage Björnsdóttir
21. ágúst 2021 kl: 13:00
Götuspyrna BA
Lýsing: 1/8
Götuspyrna
Íslandsmeistaramót - 3.umferð
Skráning hefst: 6. ágúst 2021 kl: 19:30
Skráningu lýkur: 19. ágúst 2021 kl: 23:59
1/8 míla MSÍ- mótorhjól Opinn flokkur (O)
1/8 míla DS flokkur
1/8 míla HS flokkur
1/8 míla OF flokkur
4 cyl
4x4
6 cyl
8 cyl standard
8 cyl+
Jeppar
MSÍ- mótorhjól Breytt götuhjól (B)
MSÍ- mótorhjól F-Hjól, Ferðahjól (F)
MSÍ- mótorhjól Hippar +H
MSÍ- mótorhjól Hippar -H
MSÍ- mótorhjól Unglingaflokkur (MU)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (+G)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G)
MSÍ-mótorhjól Krossarar (K)
Keppnisstjóri í keppninni var Bjarni Jón Kristjánsson
Keppnisstjóri í keppninni er nú Valdimar G. Valdimarsson
-Dómnefnd
Hvað varðar neðangreinda reglu sem sett var inn um dekk þá átti hún við á Bíladögum en ekki í n.k. keppni sem haldin er 21.08.2021. Og er því ekki í gildi.
F.H Dómnefndar
Einar Gunnlaugsson
Formaður Dómnefndar
Keppnisstjóri í keppninni var Jóhann Tryggvi Unnsteinsson
Keppnisstjóri í keppninni er nú Bjarni Jón Kristjánsson
-Dómnefnd
Dómnefnd 3.umferðar íslandsmóts í Götuspyrnu, sem fram fer þann 21.8.21, samþykkir að sett sé sérregla í flokki 8 cyl standard til að setja enn skýrari viðmið við hvað telst leyfileg mýkt hjólbarða.
Þar er þess getið í reglu 6.2.4.6 að soft compund dekk, bæði radial og diagonal, séu bönnuð og skal styðjast við slitþolsstaðal sem nefnist "treadwear".
Sá staðall skal notaður til að skera úr um hversu mjúk dekkin mega vera. Treadwear 140 eða yfir telst lögleg í flokknum en ekki undir því. Sé slíka merkingu ekki að finna á hjólbörðum á drifás teljast þeir ekki löglegir.
F.H Dómnefndar
Einar Gunnlaugsson
Formaður Dómnefndar
Sérreglur Minningarmót BA í mótaröð Íslandsmeistaramót - 3.umferð
Grein 1 Keppnin
1.1 Keppnin heitir Minningarmót BA, 3.umferð Íslandsmótsins í götuspyrnu.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinareglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Aksturssvæði BA, þann 21. ágúst 2021 kl: 14:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema veðri ekki til spyrnu með tilliti til öryggis keppenda og annara á svæðinu. Keppnistjóri, dómnefn og öryggisfulltrúi keppninnar taka ákvörðun um frestun komi sú staða upp.
1.5 Keppnin verður felld niður komi ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.6 Ef aðeins 1 skráning berst í flokk er honum heimilt að keyra "upp fyrir sig" svo framarlega að hann uppfylli flokkareglur í þeim flokki.
Grein 2 Keppnishaldari
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsvegi 13
Grein 3 Framkvæmdanefnd
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Einar Gunnlaugsson, Brynjar Schiöth, Jóhann Tryggvi Unnsteinsson.
Grein 4 Keppnissvæðið
4.1 Brautin hefur gilt leyfi til keppna í þeim flokkum sem keppt er í í götuspyrnu.
4.2 Akstursstefna brautar er frá austri til vesturs.
4.3 Lengd brautar er 201m í áttungsmílu (götuspyrnu).
Grein 5 Flokkun og útbúnaður ökutækja
5.1 Keppnisflokkar eru eftirtaldir:
5.1.1.a 1/8 míla MSÍ- mótorhjól Opinn flokkur (O)
1/8 míla DS flokkur
1/8 míla HS flokkur
1/8 míla OF flokkur
4 cyl
4x4
6 cyl
8 cyl standard
8 cyl+
Jeppar
MSÍ- mótorhjól Breytt götuhjól (B)
MSÍ- mótorhjól F-Hjól, Ferðahjól (F)
MSÍ- mótorhjól Hippar +H
MSÍ- mótorhjól Hippar -H
MSÍ- mótorhjól Unglingaflokkur (MU)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (+G)
MSÍ-mótorhjól Götuhjól (-G)
MSÍ-mótorhjól Krossarar (K)
.
Grein 6 Skráning
6.1 Engin takmörk eru á hámarks fjölda ökutækja sem skrá eru til keppni.
6.2 Skráning fer fram á vef AKÍS, og hefst um leyð og hún verður aðgengileg þar.
6.3 Skráningu lýkur 2021-08-19 23:59:00.
6.4 Almennt keppnisgjald (skráningargjald) er kr. 7000 innifalið er keppnisskirteini AKÍS
Grein 7 Tryggingar
7.1 Öll tæki sem taka þátt í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
Grein 8 Keppnis og ökuskirteini
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
Grein 9 Merkingar ökutækja
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í hliðarrúðu vinstra megin.
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan.
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst.
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
Grein 10 Ræsing
Grein 10.1 Almennt
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
10:00 Móttaka keppenda hefst
10:15 Skoðun hefst
11:30 Pittur lokar
12:00 Skoðun lýkur
12:15 Keppendafundur með keppnisstjóra
12:30 Tímatökur hefjast
13:30 Tímatökum lýkur
14:00 Keppni hefst
17:00 Áætluð keppnislok og kærufrestur hefst
Kærufresti lýkur 30 mín eftir keppnislok.
Verðlauna afhending á við stjórnstöð. Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vef AKÍS, http://skraning.akis.is/keppni/upplysingatafla/310, einnig verður formleg dagskrá og keppendalstar aðgengilegir í félagsheimili og stjórnstöð keppninnar.
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman, einnig verða þau hengd upp í félagsheimili.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar, Jónas Freyr Sigurbjörnsson og Jón Rúnar Rafnsson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Jóhann Tryggvi Unnsteinsson.
14.2.2 Skoðunarmaður er Helgi Garðarsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna bjorg waage björnsdóttir.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga
Skipuleggjandi: BA
Keppnisgjald: 7000 kr.-
Keppnisskírteini fyrir ungliða: 500 kr.-
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Gunnlaugur Gunnlaugsson | BA | 10 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Halldór Hauksson
Aðst: Hafdís Dögg |
BA BA |
115 |
2 | Kristján Skjóldal | BA | 99 |
3 | Magnús Aðalvíkingur Finnbjörnsson | BA | 96 |
4 |
Gretar Óli Ingþórsson
Aðst: Bjarki Reynisson |
BA Utan félags |
79 |
5 | Sævar Páll Stefánsson | BA | 76 |
6 | Brynjar Schiöth | Utan félags | 75 |
7 |
Kristófer Daníelsson
Aðst: Þór Þormar Pálsson - Pylsumeistarinn |
BA BA |
57 |
8 | Magnús Bergsson | KK | 56 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ingólfur Arnarson | KK | 10 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Hrannar Orri Hrannarsson | BA | 116 |
2 | Damian Ksepko | BA | 95 |
3 |
Tómas Kritjánsson
Aðst: Guð Almáttugur - skapari himins og jarðar |
BA BA |
79 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 |
Tómas Karl Benediktsson
Aðst: Birgir Jóhann Þorsteinsson |
BA BA |
41 |
2 | Hilmar Þór Bess Magnússon | KK | 10 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Ómar M.H Zarioh | BA | 152 |
2 | Ragnar S. Ragnarsson | BA | 111 |
3 | Björgvin Þórsson | BA | 98 |
4 |
Valgeir Hugi Halldórsson
Aðst: Ricky Bobby |
BA Erlendir |
93 |
5 | Brynjar Kristjánsson | BA | 59 |
6 | Garðar Þór Garðarsson | BA | 56 |
7 | Sigurður Franciszek Tryggvason Radtke | BA | 45 |
8 | Kjartan tryggvason | BA | 44 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Kristján Skjóldal | BA | 147 |
2 | Sævar Páll Stefánsson | BA | 99 |
3 |
Kristófer Daníelsson
Aðst: Þór Þormar Pálsson - Pylsumeistarinn |
BA BA |
94 |
4 | Brynjar Schiöth | BA | 87 |
5 | Harry Samúel Herlufsen | KK | 80 |
6 |
Einar Rafn Einarsson
Aðst: Einar Þór Birgisson |
BA BA |
57 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Baldur Gíslason | KK | 0 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Birgir Þór Kristinsson | BA | 147 |
2 | Davið Þór Einarsson | BA | 94 |
3 | Guðmundur Alfreð Hjartarson | BA | 80 |
4 | Tryggvi Snær Friðjónsson | BA | 68 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Guðmundur Alfreð Hjartarson | KK | 152 |
2 | Tryggvi Snær Friðjónsson | BA | 110 |
3 | Árni Hólm þormóðsson | BA | 99 |
4 | Davið Þór Einarsson | KK | 95 |
Sæti | Nafn | Félag | Stig |
---|---|---|---|
1 | Jón Stefán Laxdal | BA | 0 |