Dómnefnd barst beiðni frá Fylki Jónssyni ökumanni um undanþágu frá mætingu til keppnisskoðunar þriðjudaginn 20. júlí kl 18:00 að Hádegismóum, gegn því að mæta með keppnisbifreið sína og allan persónulegan öryggisbúnað til keppnisskoðunar 2 sem fram fer þann 23. júlí kl 18:00 að Borgarteigi 5, Sauðárkróki..
Dómnefnd tók málið fyrir og samþykkti beiðnina.
Fh. Dómnefndar,
Kristinn Snær Sigurjónsson, formaður dómnefndar.