Frá: Framkvæmdanefnd - Til: Keppenda

31. ágúst 2020 kl: 21:24 - Bílaklúbbur Akureyrar

Keppnin verður haldin þann 12.september næstkomandi.

Keyrðar verða tvær umferðir í beit.

Niðurröðun í seinni keppni ræðst af tímatökum og ferðum í fyrri keppni.

Dagskrá keppninnar verður sem hér segir: ( Birt með fyrirvara um að tímasetningar ísl. móts í torfæru standist)

15:00 Mæting keppenda

15:15 Skoðun hefst

16:00 Pittur lokar ( Keppendur í torfæru undanskildir)

16:30 Skoðun lýkur

17:15 Keppendafundur með keppnisstjóra

17:30 Tímatökur hefjast

18:30 Tímatökum lýkur

19:00 Keppni hefst

20:45 Áætluð keppnislok og uppröðun fyrir seinni keppni hefst

21:00 Seinni keppni hefst

22:30 Seinni keppni lýkur og kærufrestur hefst

23:00 Kærufresti lýkur

Verðlauna afhending við stjórnstöð. Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sæti í hverjum flokki.