Frá: Dómnefnd - Til: Allra keppenda og stjórnenda

9. september 2020 kl: 23:02 - Upplýsingaskýrsla nr. 3

Varðandi sérreglur keppninnar:


Grein 10.3.1 er eftir breytingu 7. september 2020:

Upplýsingatafla verður birt rafrænt hér á skráningarsíðu keppninnar, en einnig verður hægt að nálgast hana í stjórnstöð keppninnar.

Grein 10.3.1 verður:

Ökutæki keyra eftir þeirri rásröð sem dregin er af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

Hægt verður að fylgjast með drætti í beinni útsendingu á Facebook síðu Bílaklúbbs Akureyrar kl. 20.30 fimmtudaginn 10, september 2020.


Grein 11.3 var:

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg hér. Auk þess er hún aðgengileg í stjórnstöð.

Grein 11.3 verður:

Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á skráningarsíðu keppninnar. Auk þess er hún aðgengileg í stjórnstöð á keppnisdag.